Matís ohf.
Matís ohf.
Matís ohf.

Sérfræðingur í matvælaörverufræði

Matís leitar að metnaðarfullum og öflugum sérfræðingi til starfa á rannsóknastofu okkar í Reykjavík. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf á sviði matvælaörverufræði þar sem nákvæmni, fagmennska og samstarfshæfni eru lykilatriði.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Framkvæmd almennra örverurannsókna með faggildum aðferðum, þ.m.t. undirbúningur sýna fyrir ræktun og greiningar örvera eftir ræktun.
  • Færni-prófanir á sviði matvæla og lyfja.
  • Innri samanburðarsýnaprófanir á matvælaörverum.
  • Þátttaka í verkefnum sem heyra undir tilvísunarrannsóknir Matís.
  • Rannsóknir á matarbornum sjúkdómsvöldum.
  • Þátttaka í áframhaldandi þróun og uppbyggingu faglegrar áherslu í örverugreiningum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun í matvælafræði, lífeindafræði, líffræði eða skyldum greinum er skilyrði.
  • Reynsla af rannsóknum og/eða mælingum er kostur.
  • Jákvætt viðmót og lipurð í mannlegum samskiptum.
  • Samstarfshæfni og sveigjanleiki.
  • Sjálfstæð, skipulögð og nákvæm vinnubrögð.
  • Frumkvæði og faglegur metnaður.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.
  • Góð almenn tölvukunnátta.
Auglýsing birt20. febrúar 2026
Umsóknarfrestur8. mars 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Vínlandsleið 12-14, 113 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar