
Náttúruverndarstofnun
Náttúruverndarstofnun tók til starfa þann 1. janúar 2025 og tekur stofnunin við starfsemi Vatnajökulsþjóðgarðs og þeim hluta Umhverfisstofnunar er lýtur að náttúruvernd og lífríkis- og veiðistjórnun. Stofnunin fer með stjórnsýslu, eftirlit og önnur verkefni á sviði náttúruverndar og sjálfbærrar þróunar og friðlýstra svæða, vernd villtra fugla og spendýra og veiðistjórnunar. Þá sinnir stofnunin samhæfingu í skipulagi svæðisbundinnar stjórnunar og verndar og eftirliti á ofangreindum sviðum.
Yfirlandvörður í Jökulsárgljúfrum
Náttúruverndarstofnun auglýsir starf yfirlandvarðar laust til umsóknar í Jökulsárgljúfrum og innan annarra verndarsvæða Norðausturlands .
Um er að ræða fjölbreytt og spennandi starf í einstakri náttúru. Staða yfirlandvarðar er heilsársstaða og heyrir undir þjóðgarðsvörð á svæðinu. Starfsstöð er Ásbyrgi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ber ábyrgð á daglegri verkstjórn starfsfólks og hefur yfirsýn yfir stöðu verkefna
- Sinnir þjálfun og móttaka sumarstarfsfólks
- Fræðsla og upplýsingagjöf á svæðinu
- Vinnur að öryggismálum
- Eftirlit með náttúru og innviðum ásamt viðhaldi innviða
- Þjónusta og upplýsingagjöf til ferðafólks í samvinnu við aðra landverði
Menntunar- og hæfniskröfur
- Landvarðaréttindi
- Mjög góð samskipta- og samstarfsfærni
- Geta til að þróa hugmyndir og verklag
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
- Áhugi og þekking á náttúruvernd og umhverfismálum
- Færni í miðlun upplýsinga
- Gott vald á íslensku og ensku. Frekari tungumálakunnátta er kostur
- Almenn ökuréttindi, reynsla af akstri breyttra jeppa og vinnuvéla er kostur
- Reynsla af verkstjórn og/eða mannauðsmálum er kostur
- Verkþekking er kostur
- Réttindi í fyrstu hjálp eru kostur
- Störf á friðlýstum svæðum og starf við leiðsögn, reynsla af útivist og fjallamennsku er kostur
Auglýsing birt13. mars 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Ásbyrgi 154070, 671 Kópasker
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar