
Innkaupa- og aðfangastjóri
Baader á Íslandi óskar eftir að ráða reynslumikinn innkaupa- og aðfangastjóra sem hefur metnað fyrir faglegum vinnubrögðum, skilvirkum ferlum og árangursríkri birgðastýringu. Um er að ræða ábyrgðarmikið starf þar sem þú stýrir aðfangakeðju félagsins, berð ábyrgð á lagerhaldi, innkaupum og flutningum ásamt því að taka virkan þátt í umbótum og þróun rekstursins.
Hér færð þú tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif, þróa ferla og vinna náið með bæði innlendum og erlendum birgjum í alþjóðlegu umhverfi.
Helstu verkefni:
- Stýring aðfangakeðju og birgðastýring.
- Innkaup og ábyrgð á lagerhaldi.
- Flutningastjórnun.
- Áætlanagerð, umbætur á ferlum og umsjón lykilmælikvarða.
- Umsjón með varahlutasölu.
- Samskipti við birgja og samningagerð.
- Annað sem til fellur.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Haldbær reynsla af aðfanga-, flutning- og birgðastýringu.
- Menntun sem nýtist í starfi.
- Reynsla af innkaupum, verðlagningu og samningagerð.
- Geta til að vinna sjálfstætt ásamt því að geta unnið í hóp.
- Góð greiningarhæfni og færni í framsetningu gagna.
- Mjög góð almenn tölvukunnátta og framúrskarandi hæfni í Excel.
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót.
- Mjög góð íslensku- og enskukunnátta, þýska kostur.
Baader er leiðandi alþjóðlegt fyrirtæki á sviði vinnslulausna í matvælaiðnaði sem byggir á yfir 100 ára sögu. Baader á Íslandi hefur verið starfandi frá árinu 1959 og er saga félagsins samofin nýsköpunarsögu í íslenskum sjávarútvegi. Hjá félaginu starfa 25 starfsmenn en félagið rekur eitt öflugasta renniverkstæði landsins ásamt því að vera með fullbúið vélaverkstæði, lager, skrifstofu og söludeild.
Umsóknarfrestur er til og með 22. mars nk.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.
Umsjón með starfinu hafa Garðar Óli Ágústsson ([email protected]) og Jensína K. Böðvarsdóttir ([email protected]).
Íslenska
Enska










