

Sölu og þjónustufulltrúi - Þjónustuver
Við í þjónustuveri Sýnar leitum að jákvæðu fólki til starfa á þjónustuborði okkar.
Í starfinu felst að taka á móti erindum viðskiptavina, svara almennum fyrirspurnum og beina málum í réttar raðir innan fyrirtækisins. Við leitum að einstaklingi sem nýtur þess að vinna með fólki, hefur áhuga á að veita framúrskarandi þjónustu á lifandi vinnustað með frábæru samstarfsfólki.
Vinnutími er alla virka daga frá 9-17, með möguleika á aukavöktum. Um er að ræða fullt starf til framtíðar.
Hæfniskröfur:
- Framúrskarandi þjónustulund
- Jákvæðni
- Frumkvæði
- Sjálfstæði í vinnubrögðum og vandvirkni
- Metnaður til að ná árangri
- Stundvísi
- Áhugi á tækni
- Íslensku kunnátta
Hvað höfum við að bjóða þér?
- Frábæra vinnufélaga
- Framúrskarandi vinnuaðstöðu
- Spennandi verkefni
- Sveigjanlegt og fjölskylduvænt vinnuumhverfi
- Möguleika á starfsþróun
- Mötuneyti á heimsmælikvarða
- Internet- og farsímaáskrift auk sérkjara af sjónvarpsþjónustu
- Árlegan heilsustyrk
- Árlegan símtækjastyrk
- Samgöngustyrk fyrir þá sem nýta sér vistvæna ferðamáta til og frá vinnu
- Öflugt starfsmannafélag og frábæra vinnustaðamenningu
Við hvetjum áhugasöm af öllum kynjum til að sækja um í gegnum ráðningavefinn okkar. Umsóknarfrestur er til og með 26. nóvember 2025.
Fyrir nánari upplýsingar má senda póst á [email protected]
Hver erum við?
Sýn er leiðandi afl á sviði fjarskipta og fjölmiðlunar á Íslandi. Hjá Sýn sameinum við það besta úr heimi tækni og afþreyingar og breytum hversdagsleikanum í upplifun. Það er betra að vera með Sýn – hvort sem þú ert að horfa, hlusta, vafra eða vinna.
Hjá Sýn leggjum við áherslu á að starfsfólk upplifi vellíðan í vinnu. Það gerum við með því að búa starfsfólki framúrskarandi vinnuaðstöðu, huga að líkamlegri og andlegri heilsu þess og gefa því möguleika á sveigjanleika í vinnu. Við viljum að fólki líði vel í vinnunni, upplifi sig sem hluta af sterkri liðsheild, fái útrás fyrir sköpunarþörf sína og tækifæri til að takast á við verkefni þar sem styrkleikar þeirra fá helst notið sín. Sýn vill þannig stuðla að jákvæðri sjálfsmynd og góðu sjálfstrausti starfsfólks og að starfsfólk sýni frumkvæði í starfi. Við trúum því að fyrirtækinu gangi best þegar starfsfólkið er upp á sitt BESTA.
Íslenska
Enska










