Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Skrifstofustjóri - Heilsugæslan Mosfellsumdæmi

Heilsugæslan Mosfellsumdæmi leitar að drífandi einstakling í starf skrifstofustjóra. Viðkomandi þarf að vera sjálfstæður með frábæra skipulags- og samskiptahæfni.

Skrifstofustjóri er lykilaðili í stuðningi við forstöðumann á sviði rekstrar-, mannauðs- og gæðamála. Starfið felur í sér bæði skipulagningu, eftirfylgni og virka þátttöku í daglegum rekstri stöðvarinnar. Um er að ræða ábyrgðarmikið og krefjandi starf á spennandi vettvang, fyrir einstakling sem hefur áhuga á að taka þátt í þverfaglegri samvinnu fagstétta með hag skjólstæðingsins að leiðarljósi.

Á Heilsugæslunni Mosfellsumdæmi starfar sérhæft og metnaðarfullt starfsfólk í hvetjandi og áhugaverðu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði fær að njóta sín. Hjá okkur ríkir góður starfsandi og áhersla er lögð á náið samstarf fagstétta og teymisvinnu

Um er að ræða 100% ótímabundið starf og er æskilegt að viðkomandi getið hafið störf 1. september eða eftir nánara samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stýrir daglegum rekstri skrifstofu og afgreiðslu, m.a. móttöku og símasvörun

  • Skipuleggur vinnufyrirkomulag, vaktir og frí heilsugæslu- og móttökuritara

  • Er forstöðumanni til aðstoðar í rekstri, mannauðs- og gæðamálum

  • Hefur yfirsýn yfir aðgengi, móttöku og flæði skjólstæðinga

  • Annast vinnuskipulag, yfirferð vinnustunda og þátttöku í ráðningum

  • Mótun, samræming og eftirfylgni verklagsreglna

  • Umsjón með innkaupum, birgðum, skjalavörslu, rafrænum sendingum og frágangi sjúkraskráa

  • Stuðlar að góðri vinnustaðamenningu og tekur þátt í umbótastarfi

  • Sinnir kerfisumsjón á starfsstöð og vinnuaðstöðu starfsfólks

  • Vinnur eftir þörfum einnig í afgreiðslu

  • Sinnir öðrum þeim verkefnum sem yfirmaður felur viðkomandi

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun (B.A. eða B.S.) sem nýtist í starfi

  • Reynsla af rekstri, mannauðsmálum og/eða stjórnun æskileg

  • Þekking og áhugi á gæðamálum og umbótastarfi

  • Mjög góð skipulagshæfni og færni í forgangsröðun

  • Sjálfstæði, frumkvæði og hæfni til að vinna undir álagi

  • Mjög góð samskiptafærni og hæfni til samstarfs við ólíka fagaðila

  • Góð tölvukunnátta og kerfislæsi er skilyrði

  • Þekking á sjúkraskrárkerfi er kostur

  • Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti og ágæt enskukunnátta

Auglýsing birt24. júlí 2026
Umsóknarfrestur7. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Sunnukriki 3, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁkveðniPathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.BreytingastjórnunPathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.GreiningarfærniPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.MannauðsstjórnunPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.StarfsmannahaldPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar