
Skrifstofu- og rekstrarumsjón
Viltu starfa í fjölbreyttu hlutverki þar sem skipulag, samskipti og yfirsýn skipta máli? Við leitum að drífandi og skipulögðum einstaklingi til að taka að sér mikilvægt hlutverk í daglegum rekstri fyrirtækisins.
Starfið snýr að því að halda utan um allt sem þarf að ganga upp - frá daglegu skrifstofuhaldi yfir í samskipti, skipulag og eftirfylgni verkefna. Við leitum að einstaklingi sem hefur gaman af því að halda mörgum boltum á lofti og tryggja að ekkert falli á milli.
Helstu verkefni
- Dagleg skrifstofu- og rekstrarumsjón
- Aðstoð við framkvæmdastjóra og eftirfylgni verkefna
- Skipulag ferðalaga, funda og viðburða
- Samskipti við birgja, samstarfsaðila og þjónustuaðila
- Umsjón með samningum og eftirfylgni
- Skjalastjórnun og almenn skrifstofustörf
- Innkaup og önnur tilfallandi verkefni í rekstri
Hæfniskröfur
- Reynsla af sambærilegu starfi kostur
- Mjög góð ensku- og íslenskukunnátta
- Framúrskarandi skipulagshæfni og nákvæmni
- Hæfni til að forgangsraða og vinna sjálfstætt
- Sterk samskiptafærni og þjónustulund
- Góð tölvukunnátta, m.a. á Excel og PowerPoint
Tulipop er margverðlaunað íslenskt hugverk fyrir börn, innblásið af íslenskri náttúru og fjölbreytileika. Tulipop ævintýraheimurinn hefur notið mikilla vinsælda um áraraðir, en krakkar um allan heim geta í dag kynnst Tulipop heiminum og persónum hans í gegnum vandaðar teiknimyndir, bækur, tónlist, og fjölbreytt úrval af fallegum vörum, en teiknimyndir sem byggja á ævintýraheimi Tulipop eru nú í sýningum í um 10 löndum utan Íslands. Skrifstofa Tulipop er í Grósku Vatnsmýri.
Umsóknarfrestur er til 15. apríl 2026
Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.
Umsjón með umsóknum hafa Hilmar Garðar Hjaltason ([email protected]) og Unnur Ýr Konráðsdóttir ([email protected]) hjá Vinnvinn.
Enska
Íslenska










