Skóla- og velferðarþjónusta Árnesþings
Skóla- og velferðarþjónusta Árnesþings

Þjónustufulltrúi 80-100%

Langar þig að starfa í fjölbreyttu og mikilvægu hlutverki þar sem þú hefur bein áhrif á þjónustu við fólk í heimabyggð?

Skóla- og velferðarþjónusta Árnesþings leitar að metnaðarfullum þjónustufulltrúa með góða þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.

Hjá okkur starfar öflug liðsheild sérfræðinga í þverfaglegu samstarfi þar sem gildin samvinna, virðing og áreiðanleiki eru leiðarljós í daglegu starfi. Starfsstöð er í Laugarási í Bláskógabyggð.

Helstu verkefni og ábyrgð

·       Skipulag og utanumhald heimaþjónustu

·       Samskipti við þjónustuþega og starfsmenn

·       Móttaka umsókna og skráning gagna

·       Símsvörun og almenn móttaka

·       Umsjón með tilvísunum og skjalavistun

·       Uppfærsla efnis á heimasíðu

·       Innkaup og almenn skrifstofuumsjón

·       Aðstoð við önnur tilfallandi verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur

·       Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi

·       Þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum

·       Skipulagshæfni, sjálfstæði og frumkvæði

·       Góð almenn tölvukunnátta

·       Góð hæfni til að tjá sig í ræðu og riti

Auglýsing birt6. apríl 2026
Umsóknarfrestur20. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Laugarás 167381, 801 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar