
Lækning - móttökuritari
Hefur þú gaman af mannlegum samskiptum og góðu skipulagi? Við hjá Lækningu leitum að jákvæðum og þjónustuliprum starfsmanni í okkar frábæra teymi.
Sem hluti af móttökuteyminu ert þú gjarnan fyrsta snerting viðskiptavina við þjónustuna okkar. Þú tekur á móti gestum af fagmennsku og hlýju, svarar fyrirspurnum í síma og á staðnum og tryggir að móttakan gangi hnökralaust fyrir sig. Starfið felur jafnframt í sér ýmis almenn skrifstofustörf og önnur verkefni sem styðja við vandaða og faglega þjónustu okkar.
Ert þú rétta manneskjan?
Við leitum að einstaklingi sem:
- Hefur framúrskarandi samskiptahæfni og þjónustulund
- Nýtur þess að skapa jákvæða upplifun fyrir viðskiptavini
- Er skipulagður, sjálfstæður og getur unnið undir álagi
- Hefur góða almenna tölvukunnáttu og góða færni í íslensku og ensku
Starfið:
Um framtíðarstarf er að ræða í u.þ.b. 80% starfshlutfalli með möguleika á frekari afleysingum eftir samkomulagi. Viðkomandi þarf að geta hafið störf um miðjan maí.
Í boði er líflegur vinnustaður með góðum starfsanda og gott vinnumhverfi.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hildur Eyjólfsdóttir framkvæmdastjóri Lækningar, í síma 590-9200 og á [email protected]
Hjá Lækningu er að finna sérfræðinga á ýmsum sviðum heilbrigðisþjónustunnar. Við bjóðum upp á nútímalegar og vel útbúnar móttökustofur og fullkomnar skurðstofur í faglegu og vinalegu umhverfi.
Enska
Íslenska










