Efling stéttarfélag
Efling stéttarfélag

Þjónustufulltrúi

Efling stéttarfélag leitar að öflugum og metnaðarfullum þjónustufulltrúa til starfa á Þjónustusviði. Þar gegnir þú lykilhlutverki í daglegri þjónustu við félagsfólk, tekur á móti erindum og sérð um afgreiðslu umsókna í sjóði félagsins, svo sem orlofs-, fræðslu- og sjúkrasjóð.

Við leitum að einstaklingi sem hefur gott vald á íslensku og ensku og á auðvelt með að tjá sig bæði í ræðu og riti. Þekking á öðrum tungumálum er mikill kostur. Viðkomandi þarf að vera þjónustumiðaður, jákvæður og reiðubúinn til að taka að sér fjölbreytt verkefni á skrifstofu Eflingar.


Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Veita framúrskarandi þjónustu og samskipti félagsfólk.
  • Móttaka, svörun og úrvinnsla á erindum félagsfólks.
  • Afgreiðsla umsóknir í sjóði félagsins.
  • Veita upplýsingar og svara algengum fyrirspurnum um vinnuréttindi.


Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Stúdentspróf eða sambærileg menntun.
  • Góð færni í mannlegum samskiptum og menningarlæsi.
  • Rík þjónustulund og umburðarlyndi.
  • Góð tök á íslensku og ensku í ræðu og riti, önnur tungumálakunnátta mikill kostur.
  • Góð tölvukunnátta og reynsla í Office 365.


www.efling.is

Umsóknarfrestur er til og með 6. apríl nk.

Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf á íslensku þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.

Nánari upplýsingar veita Garðar Ó. Ágústsson ([email protected]) og Jensína K. Böðvarsdóttir, ([email protected]) hjá Vinnvinn.

Auglýsing birt27. mars 2026
Umsóknarfrestur6. apríl 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Guðrúnartún 1, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar