
ECIT
ECIT hýsir fjármálatengd verkefni fyrir einstaklinga, félög, fyrirtæki og stofnanir.
Við leggjum okkur fram um að greina og skilja þarfir viðskiptavinarins og mikilvægi þess að uppfylla þær. Hjá ECIT getur þú treyst á gæði, trúnað og persónulega þjónustu.

Sérfræðingur í launaþjónustu hjá ECIT
Við leitum að metnaðarfullum og lausnamiðuðum launasérfræðingi með ríka þjónustulund, góða samskiptahæfni og áhuga á að taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu og þróun launaþjónustu hjá ECIT.
Starfið felur í sér fjölbreytt og krefjandi verkefni á sviði launavinnslu og ráðgjafar, þjónustu við fjölbreyttan hóp viðskiptavina, eftirfylgni með launatengdum málum og þátttöku í þróun og umbótum á verkferlum. Launasérfræðingur starfar sem hluti af öflugu teymi sérfræðinga og vinnur náið með samstarfsfólki að því að tryggja faglega þjónustu, skilvirka verkferla og framúrskarandi upplifun viðskiptavina.
Við bjóðum
- Áhugavert og fjölbreytt starf í öflugu teymi sérfræðinga.
- Tækifæri til að taka þátt í þróun þjónustu, verkferla og nýrra lausna.
- Framsækið og metnaðarfullt starfsumhverfi með áherslu á nýsköpun og tækni.
- Öflugt samstarfsfólk, góða vinnustaðamenningu og sveigjanleika.
- Tækifæri til starfsþróunar innan öflugs og vaxandi fyrirtækis.
Unnið verður úr umsóknum jafnóðum og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Leiða og efla launateymið og stuðla að jákvæðri og árangursdrifinni teymismenningu.
- Bera ábyrgð á mönnun, verkefnastýringu og skilvirkri nýtingu auðlinda innan teymisins.
- Tryggja framúrskarandi þjónustu, gæði og skil á launavinnslu samkvæmt verkferlum og tímamörkum.
- Stuðla að áframhaldandi þróun launaþjónustunnar með umbótum á verkferlum, kerfum og þjónustu.
- Fylgja eftir rekstrarlegum markmiðum teymisins, þar á meðal nýtingu, afköstum og arðsemi verkefna.
- Bera ábyrgð á innleiðingu nýrra viðskiptavina og stuðla að sterkum og farsælum viðskiptasamböndum.
- Vinna náið með stjórnendum, starfsfólki og viðskiptavinum að áframhaldandi vexti og árangri launaþjónustunnar.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi.
- Reynsla af launavinnslu og góð þekking á launamálum.
- Sterk samskiptahæfni.
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
- Áhugi á nýrri tækni, sjálfvirknivæðingu og tækifærum sem felast í stafrænni þróun og umbótum.
- Góð tölvukunnátta og reynsla af notkun upplýsingakerfa.
- Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.
Auglýsing birt12. nóvember 2026
Umsóknarfrestur26. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Smáratorg 3, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
JákvæðniSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðVinna undir álagiÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Framkvæmdarstjóri - öflugt félag á byggingamarkaði
Fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu

Launafulltrúi hjá Akraneskaupstað
Akraneskaupstaður

Svæðisstjóri fyrirtækja á Suðurlandi
Arion banki

Sérfræðingur í bókhaldsdeild
Eir, Skjól og Hamrar hjúkrunarheimili

Bókari
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Sérfræðingur í innkaupum
Landsvirkjun

Fjármálastjóri FSÍ
Fimleikasamband Íslands

Launa- og bókhaldssérfræðingur
Domino's Pizza

Sérfræðingur í fjármálum
Abler - Sport Matters

Tæknilegur bókari
Sessor

Sérfræðingur í rekstrar- og sjálfbærniáhættu
Arion banki

Framkvæmdastjóri Fimleikafélagsins Björk
Fimleikafélagið Björk