

Fjármálastjóri FSÍ
Fimleikasamband Íslands leitar að öflugum og skipulögðum fjármálastjóra í fullt starf.
Um er að ræða fjölbreytt og ábyrgðarmikið starf þar sem fjármálastjóri gegnir lykilhlutverki í daglegum rekstri sambandsins og vinnur náið með framkvæmdastjóra og öðrum starfsmönnum FSÍ. Við leitum að einstaklingi sem hefur góða þekkingu á fjármálum og rekstri, vinnur sjálfstætt og skipulega og hefur áhuga á að taka virkan þátt í áframhaldandi uppbyggingu sambandsins.
Fjármálastjóri starfar á skrifstofu Fimleikasambands Íslands og heyrir undir framkvæmdastjóra. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Viðkomandi fær tækifæri til að taka virkan þátt í áframhaldandi þróun og uppbyggingu sambandsins og hafa áhrif á verklag og fjármálastjórnun þess.
Helstu verkefni
• Umsjón með bókhaldi og daglegum fjármálum FSÍ
• Fjárhagsáætlanagerð, eftirfylgni og greining
• Ársfjórðungsuppgjör og önnur regluleg uppgjörsvinna
• Undirbúningur ársreiknings í samstarfi við framkvæmdastjóra, endurskoðanda og skoðunarmenn
• Reikningagerð, innheimta og eftirfylgni með viðskiptakröfum
• Skýrslugerð og regluleg fjárhagsleg skil til ÍSÍ og annarra aðila
• Umsjón með leyfiskerfi og öðrum fjárhagslegum ferlum tengdum starfsemi sambandsins
• Umsjón með greiðslum til dómara og dómarasamningum
• Innra eftirlit, áhættustýring og þróun verkferla á fjármálasviði
• Samskipti við endurskoðanda, skoðunarmenn, banka og aðra samstarfsaðila
• Leiðandi hlutverk í öflun styrkja og styrktaraðila
• Þátttaka í öðrum verkefnum sem tengjast fjármálum og rekstri sambandsins
Hæfniskröfur
• Menntun sem nýtist í starfi, svo sem á sviði fjármála, viðskiptafræði eða sambærilegu sviði
• Reynsla af bókhaldi, uppgjörsvinnu og fjármálastjórnun
• Góð þekking á fjárhagsáætlanagerð og greiningu
• Mjög góð tölvukunnátta og færni í Excel
• Sjálfstæð, nákvæm og skipulögð vinnubrögð
• Góð samskipta- og samstarfshæfni
• Frumkvæði og hæfni til að taka ábyrgð á verkefnum og fylgja þeim eftir
• Góð íslensku- og enskukunnátta
Reynsla af sambærilegu starfi, þekking á rekstri félagasamtaka eða íþróttahreyfingarinnar og reynsla af styrkjaöflun er kostur.
Íslenska
Enska










