

Skrifstofustjóri
Rúko leitar að metnaðarfullum og sjálfstæðum skrifstofustjóra sem vill gegna lykilhlutverki í daglegum rekstri fyrirtækisins. Starfið er bæði fjölbreytt og ábyrgðarmikið og spannar allt frá fjármálatengdum verkefnum, innheimtu og greiðslum yfir í skrifstofuhald, kerfismál og samskipti við samstarfsaðila.
Hér er spennandi tækifæri fyrir einstakling sem nýtur þess að hafa yfirsýn, taka sjálfstæðar ákvarðanir og bera ábyrgð á fjölbreyttum verkefnum. Við leitum að einstaklingi sem sýnir frumkvæði, hefur gott skipulag og leggur metnað í að tryggja að daglegur rekstur gangi vel fyrir sig.
· Umsjón með innlendum og erlendum reikningum og greiðslum.
· Bókhaldstengd verkefni, afstemmingar og eftirfylgni með fjármálum.
· Umsjón með innheimtu, viðskiptakröfum og samskiptum við innheimtuaðila.
· Samskipti við birgja, lánardrottna, banka og aðra samstarfsaðila.
· Umsjón og samhæfing tölvu- og kerfismála í samstarfi við þjónustuaðila.
· Umsjón með almennum skrifstofurekstri, innkaupum og aðstöðu starfsfólks.
· Skipulagning ferðalaga og ýmis starfsmannatengd umsýsla.
· Önnur fjölbreytt verkefni sem tengjast daglegum rekstri fyrirtækisins.
· Menntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði viðskiptafræði, rekstrar eða bókhalds.
· Reynsla af skrifstofuhaldi, bókhaldi eða sambærilegum verkefnum.
· Góð tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér ný upplýsingakerfi.
· Þekking á Business Central og PowerBI.
· Rík skipulagshæfni, nákvæmni og sjálfstæð vinnubrögð.
· Frumkvæði, lausnamiðuð hugsun og hæfni til að halda utan um mörg verkefni samtímis.
· Góð samskipta- og samstarfshæfni og jákvætt viðmót.
· Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.
· Þýskukunnátta kostur.
Íslenska
Enska
Þýska










