Isavia / Keflavíkurflugvöllur
Isavia / Keflavíkurflugvöllur
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Bókari

Viltu starfa með öflugu teymi starfsfólks sem sinnir lykilverkefnum í fjármálum og bókhaldi?

Við leitum eftir að ráða talnaglöggan og vandvirkan einstakling í starf innheimtubókara. Viðkomandi mun starfa með öflugu teymi í reikningshaldi fyrirtækisins sem sinnir bókhaldi fyrir Isavia ohf. og dótturfélög.

Helstu verkefni

  • Tekjuskráning reikninga

  • Innheimta viðskiptakrafna

  • Afstemmingar

  • Fleiri tilfallandi verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Reynsla af tekjuskráningu og innheimtu

  • Þekking á Business central bókhaldskerfi er skilyrði

  • Úrbótamiðuð hugsun og nálgun á verkefni

  • Góð tölvukunnátta og hæfni til að nýta tæknilausnir

  • Jákvæðni og góð samskiptahæfni

Við bjóðum upp á hollan og góðan mat í mötuneytum okkar, farsímaáskrift og allt starfsfólk hefur aðgang að heilsu- og líkamsræktarstöðvum sér að kostnaðarlausu.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Helga Erla Albertsdóttir, í gegnum netfang [email protected]

Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi um hæfni viðkomandi í starfið.

Við hvetjum áhugasama aðila, óháð kyni og uppruna, að sækja um.

Isavia er vinnustaður þar sem við sýnum hvert öðru virðingu og erum heiðarleg gagnvart sjálfum okkur og öðrum. Við gætum þess að viðhalda gleðinni, erum hugrökk, uppbyggileg og tökum ábyrgð á eigin frammistöðu. Saman náum við árangri.

Auglýsing birt10. nóvember 2026
Umsóknarfrestur22. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Dalshraun 3, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar