

Sérfræðingur í Power Platform og stafrænni umbreytingu
Viltu taka af skarið og taka þátt í að leiða spennandi verkefni í stafrænum lausnum og gervigreind? Hefur þú reynslu af þróun eða ráðgjöf í Power Platform og vilt vinna í metnaðarfullu teymi sem mótar framtíðina með nýjustu lausnum Microsoft?
Advania er í fararbroddi í Power Platform umhverfinu og eftirspurnin frá viðskiptavinum heldur áfram að aukast hratt. Við leitum nú að reyndum Power Platform sérfræðingi sem vill hafa áhrif, taka ábyrgð og skapa lausnir sem skila raunverulegu virði.
Af hverju Advania?
Hjá okkur færðu tækifæri til að vinna með öflugu teymi sérfræðinga í lifandi, síbreytilegu og ört vaxandi umhverfi. Viðskiptalausnir Advania nýta sér Power Platform til að þróa sérsniðin öpp, eigin vörur, sjálfvirknivæða ferla, innleiða gervigreind og styðja við stafræna vegferð fjölbreyttra fyrirtækja, frá smærri lausnum upp í umfangsmikil umbreytingarverkefni.
Hvað felst í starfinu?
- Hönnun og þróun lausna í Power Platform (Apps, Pages, Automate, Copilot Studio)
- Ráðgjöf, greining og innleiðing hjá viðskiptavinum á öllum þroskastigum
- Þátttaka í stærri umbótaverkefnum
- Samstarf við fjölbreytt teymi innan Advania
Við leitum að þér sem
- Hefur trausta reynslu af Power Platform eða sambærilegri þróun (t.d. app- eða vefþróun, sjálfvirknivæðingu eða samþættingum)
- Hefur mikinn áhuga á stafrænum lausnum, sjálfvirkni og gervigreind
- Er tilbúinn að takast á við krefjandi og áhrifamikil verkefni
- Nýtur þín í teymi sem er skapandi, stórhuga og innleiðir nýbreytni hjá viðskiptavinum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun í tölvunarfræði, hugbúnaðarverkfræði eða sambærilegu námi
- Reynsla af Power Platform
- Áhugi á að tileinka sér nýja tækni og vaxa í starfi
- Sjálfstæð og skipuleg vinnubrögð
- Sköpunargleði, metnaður, forvitni og frumkvæði
Íslenska
Enska










