Ljósleiðarinn
Ljósleiðarinn
Ljósleiðarinn

Hugbúnaðarsérfræðingur

Við leitum að áhugasamri, sjálfstæðri og umbótasinnaðri manneskju með reynslu af hugbúnaðargerð í hugbúnaðarteymi Ljósleiðarans.

Við leggjum áherslu á að vera í góðu samtali við okkar viðskiptavini og að nýta hugbúnaðarlausnir á skapandi hátt til að auka þjónustuupplifun. Því er góð samskiptafærni lykilforsenda árangurs í þessu starfi ásamt reynslu af hugbúnaðarþróun.

Ef þú brennur fyrir nýrri tækni og vilt smíða vörur sem hafa áhrif þar sem mikið liggur við þá erum við að leita að þér!

Helstu viðfangsefni

Í starfinu felst meðal annars þróun og viðhald á hugbúnaðarlausnum Ljósleiðarans, samstarf við önnur teymi til að tryggja framúrskarandi virkni og notendaupplifun, innleiðing nýjustu tækni og aðferða í forritun, auk þess að leysa tæknileg vandamál og útfæra nýjar hugmyndir.

Hjá okkur færðu tækifæri til að starfa í hópi sérfræðinga sem ber ábyrgð á þróun og rekstri hugbúnaðarlausna Ljósleiðarans, þar sem lögð er áhersla á sveigjanleika, nýsköpun og örugga notendaupplifun. Við notum fjölbreytt verkfæri og tækniramma, þar á meðal Python, TypeScript, Go, Vue, C#, og FastAPI. Lausnirnar keyra á innviðum eins og AWS og Kubernetes, og við notum Git fyrir útgáfustýringu og samvinnu.

Hæfni:

  • Grunn eða miðlungs þekking á skýjaumhverfi og reynsla af þjónustum eins og AWS
  • Góð samskipta- og samvinnufærni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Reynsla af forritunarmálum og umhverfum á borð við þau sem við notum er kostur
  • Menntun í tölvunarfræði, skyldum greinum eða sambærileg haldbær reynsla
  • Forvitin/n, lausnamiðuð/aður og langar að læra
Auglýsing birt27. mars 2026
Umsóknarfrestur17. apríl 2026
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Bæjarháls 1, 110 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar