Helix Health
Helix Health
Helix Health

Framendaforritari

Við leitum að metnaðarfullum og notendamiðuðum framendaforritara með brennandi áhuga á hönnun og vilja til þess að byggja lausnir sem að hafa raunveruleg áhrif.

Hjá Helix Health hefur skýr og skilvirk hönnun framenda bein áhrif á líf fólks. Hver lína af kóða getur sparað dýrmætan tíma, aukið öryggi og haft raunveruleg áhrif á líðan og lífsgæði sjúklinga og heilbrigðisstarfsfólks.

Ef þú vilt vinna að lausnum sem skipta máli, þá viljum við heyra frá þér.

Helstu verkefni og ábyrgð

·       Taka virkan þátt í þróun og viðhaldi notendaviðmóts hugbúnaðarlausna Helix

·       Vinna náið með hönnuðum, vörustjórum og þróunarteymi að því að skapa notendavænar og árangursríkar lausnir

·       Nýta ný tól og aðferðir (m.a. gervigreind) til að auka skilvirkni og gæði í þróun

·       Sjá til þess að þróun framenda fylgi viðurkenndum og bestu verklagsreglum, með áherslu á gæði, aðgengi og viðhald

·       Vera málsvari fyrir góða notendaupplifun og leggja til úrbætur sem bæta bæði virkni og útlit

·       Deila þekkingu, taka þátt í kóðaúttektum og styðja samfellda faglega þróun teymisins

·       Leggja sitt af mörkum til lausnamiðaðs og jákvæðs teymisanda þar sem samvinna og virðing eru í forgrunni

Menntunar- og hæfniskröfur

·       Sterkur grunnur í HTML, CSS og TypeScript

·       Reynsla af React er kostur

·       Skilningur á responsive hönnun og aðgengismálum (accessibility)

·       Frumkvæði, sjálfstæði og sterkt lausnamiðað hugarfar.

·       Hæfni til að skila lausnum í samstarfi við aðra

·       Menntun í tölvunarfræði, hugbúnaðarverkfræði eða sambærilegum greinum, eða sambærileg reynsla

·       Reynsla af eða áhugi á að nýta gervigreind sem hluta af þróunarferli og daglegu vinnuflæði

·       Vilji til að læra hratt, prófa nýja hluti og tileinka sér nýjar leiðir í þróun

Fríðindi í starfi

·       Tækifæri til að starfa í fjölbreyttu og lifandi starfsumhverfi.

·       Hvetjandi verkefni þar sem virðing og samvinna eru lykilatriði.

·       Sveigjanleika og tækifæri til persónulegs og faglegs vaxtar.

·       Tækifæri til að vinna með nýjustu tækni, þar á meðal gervigreind, í raunverulegum verkefnum.

·       Samgöngustyrk og íþróttastyrk

·       Líkamsræktaraðstaða í húsinu

·       Frábært mötuneyti

·      Metnaðarfullur stuðningur við starfsfólk í fæðingarorlofi 

Auglýsing birt29. mars 2026
Umsóknarfrestur9. apríl 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Borgartún 37, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar