Helix Health
Helix Health
Helix Health

Full stack forritari

Við leitum að metnaðarfullum og lausnamiðuðum alhliðaforritara (fullstack) með brennandi áhuga á að þróa öflugar og öruggar hugbúnaðarlausnir fyrir heilbrigðisstarfsfólk og sjúklinga. Hjá Helix Health hafa traustar og skilvirkar lausnir bein áhrif á líf fólks. Hver lína af kóða getur sparað dýrmætan tíma, aukið öryggi og haft raunveruleg áhrif á líðan og lífsgæði sjúklinga og heilbrigðisstarfsfólks. Ef þú vilt vinna að lausnum sem skipta máli, þá viljum við heyra frá þér.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Taka virkan þátt í þróun og viðhaldi hugbúnaðarlausna Helix
  • Vinna náið með fjölbreyttum teymum með því markmiði að skapa öflugar og áreiðanlegar lausnir
  • Nýta ný tól og aðferðir (m.a. gervigreind) til að auka skilvirkni og gæði í þróun 
  • Sjá til þess að þróun bakenda fylgi viðurkenndum vinnulögum og bestu verklagsreglum, með áherslu á gæði, öryggi og viðhald 
  • Taka þátt í samþættingu milli kerfa og tryggja áreiðanlegt gagnaflæði
  • Deila þekkingu, taka þátt í kóðaúttektum og styðja samfellda faglega þróun teymisins
  • Leggja sitt af mörkum til lausnamiðaðs og jákvæðs teymisanda, þar sem samvinna og virðing eru í forgrunni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af .NET (C#) 
  • Reynsla af Angular – kostur
  • Reynsla af GraphQL - kostur
  • Þekking á gagnagrunnum - kostur
  • Reynsla af samþættingu milli kerfa - kostur
  • Jákvætt viðhorf, lausnamiðuð hugsun og góð samskiptahæfni
  • Menntun í tölvunarfræði, hugbúnaðarverkfræði eða sambærilegum greinum, eða sambærileg reynsla
Fríðindi í starfi
  • Tækifæri til að starfa í fjölbreyttu og lifandi starfsumhverfi.
  • Hvetjandi verkefni þar sem virðing og samvinna eru lykilatriði.
  • Sveigjanleika og tækifæri til persónulegs og faglegs vaxtar.
  • Tækifæri til að vinna með nýjustu tækni, þar á meðal gervigreind, í raunverulegum verkefnum.
  • Samgöngustyrk og íþróttastyrk
  • Líkamsræktaraðstaða í húsinu
  • Frábært mötuneyti
  • Metnaðarfullur stuðningur við starfsfólk í fæðingarorlofi 
Auglýsing birt29. mars 2026
Umsóknarfrestur9. apríl 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Borgartún 37, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar