Umhverfis- og orkustofnun
Umhverfis- og orkustofnun
Umhverfis- og orkustofnun

Sérfræðingar á sviði loftslagsmála – ETS viðskiptakerfi ESB

Laust eru til umsóknar starf sérfræðings á sviði loftslagsmála í teymi loftgæða og losunarheimilda. Teymið ber m.a. ábyrgð á utanumhaldi með framkvæmd viðskiptakerfis Evrópusambandsins með losunarheimildir fyrir Ísland, ETS.

Helstu verkefni sérfræðingsins munu felast í utanumhaldi með framkvæmd viðskiptakerfis Evrópusambandsins með losunarheimildir hvað varðar iðnað, flug og sjóflutninga í samstarfi við aðra teymismeðlimi. Þá eru greiningar vegna breytinga á viðskiptakerfinu einnig hluti starfsins en fyrirséð er að umfang kerfisins muni aukast á næstu árum. Markmið með starfi teymisins er að tryggja að þeir aðilar sem falla undir viðskiptakerfið uppfylli kröfur kerfisins ma. með yfirferð á skýrslum er varðar vöktun og losun gróðurhúsalofttegunda sem aðilar í kerfinu skila til stofnunarinnar. Mikil samskipti eru við evrópskar og alþjóðlegar stofnanir.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir varðandi losun frá iðnaði, sjóflutningum og/eða flugi – umsjón með kerfinu í teymisvinnu
  • Þátttaka eftir atvikum í verkefnum tengdum CBAM og kolefnisgjaldtöku á innfluttar vörur og öðrum skyldum verkefnum
  • Samskipti við rekstraraðila, stjórnvöld og systurstofnanir vegna losunar gróðurhúsalofttegunda 
  • Utanumhald og yfirferð gagna frá rekstraraðilum er varða losun og vöktun 
  • Stjórnsýsluverkefni, m.a. innleiðing reglugerða 
  • Miðlun upplýsinga til almennings og hagsmunaaðila 
  • Samskipti við evrópskar og alþjóðlegar stofnanir 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi, svo sem háskólamenntun á sviði umhverfisfræði, náttúruvísinda, verkfræði eða endurskoðunar.
  • Góð hæfni til að vinna úr og greina gögn, talnagleggni, auk færni í Excel og öðrum stafrænum verkfærum. Reynsla af því að vinna í CRM-kerfum (Dynamics eða PowerApps) er kostur.
  • Þekking á ETS gerðum og Evrópusamvinnu er kostur
  • Stafræn verkefni – þekking og geta til að sýna frumkvæði.
  • Góð samstarfshæfni og vilji til að vinna í teymi
  • Gott vald á framsetningu efnis á íslensku og ensku bæði í ræðu og riti
  • Frumkvæði, skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
Auglýsing birt19. ágúst 2026
Umsóknarfrestur1. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar