

Sérfræðingur í umhverfisvöktun
Vilt þú taka þátt í að byggja upp nýtt og spennandi fyrirtæki á sviði umhverfisrannsókna?
Marvakt ehf. er nýstofnað félag sem sérhæfir sig í umhverfisvöktun. Starfsemin snýr að stærstum hluta að vöktun í sjó, en tekur einnig að sér fjölbreytt verkefni á landi. Leitað er að drífandi starfsmanni í 50% starfshlutfall til að byrja með, með ríka möguleika á að starfið þróist í fullt starf í framtíðinni.
Starfsstöð og vettvangur:
Aðalstarfsstöð fyrirtækisins er á Akranesi. Vettvangsvinna fer fram um allt land, og því er möguleiki á að semja um aðra starfsstöð eða fyrirkomulag fyrir rétta manneskju.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Gagnaöflun, sýnataka og umhverfisvöktun í sjó og á landi.
- Úrvinnsla gagna, greining og skýrslugerð.
- Þátttaka í þróun nýrra vöktunarverkefna.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun í náttúrufræði, líffræði eða skyldum greinum sem nýtist í starfi.
- Framúrskarandi hæfni til að tjá sig í máli og riti á íslensku er skilyrði.
- Góð enskukunnátta er skilyrði.
- Ökuréttindi eru skilyrði.
- Kunnátta í einu norðurlandamáli er mikill kostur.
- Reynsla af vettvangsvinnu og sjóvinnu er kostur (starfið hentar ekki þeim sem þjást af mikilli sjóveiki).
- Nákvæmni og sjálfstæði í vinnubrögðum og hæfni í mannlegum samskiptum.
Fríðindi í starfi
- Fjölbreytt og krefjandi verkefni á vettvangi og á skrifstofu.
- Tækifæri til að móta eigið starf og vaxa með nýju fyrirtæki.
- Sveigjanleika í starfi.
Auglýsing birt24. ágúst 2026
Umsóknarfrestur18. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Bárugata 8-10 8R, 300 Akranes
Starfstegund
Hæfni
Almenn ökuréttindiAlmenn tölvukunnáttaÁreiðanleikiFagmennskaHeiðarleikiLíkamlegt hreystiMannleg samskiptiMicrosoft ExcelMicrosoft WordNákvæmniÖkuréttindiRannsóknirSamviskusemiSkýrslurTextagerðVinnsla rannsóknargagnaWindows
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (8)

Sérfræðingur / Scientist, Analytical R&D
Alvotech hf

Animal Care Team Member
The Beluga Operating Company ehf.

Sótthreinsitæknir eða sérhæfður starfsmaður í skol á skurðstofu Hringbraut
Landspítali

Sérfræðingar á sviði loftslagsmála – ETS viðskiptakerfi ESB
Umhverfis- og orkustofnun

Starfsmaður í býtibúr og ritarastarf - hlutastarf
Landspítali

Starfsmaður í gæða- og vöruþróunarteymi
Akraborg ehf.

Starf í klínískri erfðaráðgjöf
Landspítali

Aðstoðarstöðvarstjóri - Seiðastöð
Samherji fiskeldi ehf.