Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Sérfræðingur á sviði loftslagsmála

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið leitar að sérfræðingi á sviði loftslagsmála sem hefur brennandi áhuga á að starfa í efstu stjórnsýslu landsins við að móta framtíð loftslagsmála.

Um er að ræða fjölbreytt verkefni í loftslagsmálum í lifandi starfsumhverfi þar sem áhersla er lögð á teymisvinnu og skipulögð vinnubrögð

Staðan er á skrifstofu loftslagsmála sem hefur það megin markmið að fylgja eftir loftslagsstefnu stjórnvalda. Megin áherslur eru að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og vinna að aðlögun íslensks samfélags að loftslagsbreytingum. Verkefnin snúa að því að halda utan um stefnumótun og löggjöf sem varðar loftslagsmál, aðgerðaáætlun í loftslagsmálum og aðlögunaráætlun vegna loftslagsbreytinga. Þá er útfærsla og framkvæmd alþjóðasamninga á sviði loftslagsmála og Evrópulöggjöf í brennidepli. Auk þess sinnir skrifstofan málefnum vegna loftmengunar, veðurþjónustu, loftslagsþjónustu, og vöktun náttúruvár sem fellur ekki undir starfssvið Ofanflóðanefndar.

Helstu verkefni og ábyrgð

Sérfræðingur á sviði loftslagsmála tekur þátt í og leiðir verkefni á skrifstofunni með tilliti til loftslagsaðgerða og stefnumótunar, sinnir afgreiðslu mála, stjórnsýslu, alþjóðlegu samstarfi, eftirfylgni og ráðgjöf. Sérfræðingurinn mun sérstaklega leiða og taka þátt í vinnu er snýr að stefnumótun vegna kolefnisstjórnunar og útfærslu á kolefnishlutleysi. Þá tekur sérfræðingur á sviði loftslagsmála þátt í vinnslu frumvarpa, reglugerða og upptöku Evrópuregluverks. Starfið felur einnig í sér samstarf innan ráðuneytisins, við önnur ráðuneyti, stofnanir og ýmsa hagaðila.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun á meistarastigi sem nýtist í starfi.
  • Góð þekking á sviði loftslagsmála og loftslagsvísinda.
  • Reynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu, þ.m.t. þekking á sviði EES-samningsins og alþjóðlegu laga og regluverki á sviði loftslagsmála.
  • Þekking á kolefnisstjórnun er kostur.
  • Góð stafræn færni og lausnamiðuð hugsun.
  • Frumkvæði, skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði í starfi.
  • Mjög góðir samstarfs- og samskiptahæfileikar og geta til að vinna í teymi.
  • Mjög gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti.
  • Mjög góð kunnátta í ensku.
Auglýsing birt14. ágúst 2026
Umsóknarfrestur24. ágúst 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar