Akureyri
Akureyri
Akureyri

Oddeyrarskóli: Náms- og starfsráðgjafi

Við Oddeyrarskóla er laus til umsóknar 20 - 40% ótímabundin staða náms- og starfsráðgjafa.

Ráðið verður í stöðuna frá 1. ágúst 2026.

Í Oddeyrarskóla er áhersla lögð á samvinnu starfsfólks og vellíðan nemenda. Þar er unnið að því að skapa skólasamfélag sem einkennist af jákvæðum skólabrag, áhugasömum og metnaðarfullum einstaklingum. Skólinn starfar samkvæmt hugmyndafræði SMT skólafærni og er heilsueflandi grunnskóli. Einkunnarorð skólans eru ábyrgð, virðing og vinátta og lögð er áhersla á að þau setji mark sitt á allt starf í skólanum. Oddeyrarskóli er fámennasti hverfisskólinn á Akureyri með um 180 nemendur.

Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.oddeyrarskoli.is

Leitað er að jákvæðum og samviskusömum einstaklingi með mikinn metnað, sem sýnt hefur árangur í störfum sínum og leggur áherslu á vellíðan og árangur nemenda í samstarfi við aðra starfsmenn og stjórnendur skólans. Hlutverk námsráðgjafa er að standa vörð um velferð allra nemenda og veita ráðgjöf varðandi nám, námstækni og námsvenjur.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Náms- og starfsráðgjafi veitir nemendum ráðgjöf um náms- og starfsval og fræðslu um nám, störf og atvinnulíf.
  • Heldur utan um skipulag náms- og starfsfræðslu í skólanum.
  • Undirbýr nemendur undir flutning milli skóla og/eða skólastiga og fylgir þeim eftir inn í framhaldsskóla.
  • Aðstoðar nemendur við að gera sér grein fyrir eigin áhuga­sviðum og meta hæfileika sína raunsætt miðað við nám og störf.
  • Sinnir fyrirbyggjandi starfi, til dæmis vörnum gegn vímuefnum, einelti og ofbeldi í samstarfi við starfsmenn skóla og aðra, svo sem starfsmenn félagsmiðstöðva.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Náms- og starfsráðgjafa menntun
  • Farsæl reynsla af starfi í grunnskóla
  • Frumkvæði og samstarfsvilji.
  • Sveigjanleiki og víðsýni í starfi og samskiptum.
  • Góðir skipulagshæfileikar.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Reglusemi, samviskusemi og stundvísi.
  • Áhugi á þróunarstarfi.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Auglýsing birt29. maí 2026
Umsóknarfrestur10. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Geislagata 9, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.HugmyndaauðgiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.KennslaPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.NákvæmniPathCreated with Sketch.Náms- og starfsráðgjafiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.VandvirkniPathCreated with Sketch.ÞjónustulundPathCreated with Sketch.Þolinmæði
Starfsgreinar
Starfsmerkingar