Austurbæjarskóli
Austurbæjarskóli

Verkefnastjóri læsis

Austurbæjarskóli er rótgróinn skóli í miðbæ Reykjavíkur. Í skólanum eru um 330 nemendur í 1.-10. bekk og um 70 starfsmenn. Í Austurbæjarskóla er lögð áhersla á fjölbreytta kennsluhætti, leiðsagnarnám, samvinnu auk þess sem list- og verkgreinar skipa stóran sess í skólastarfinu. Lögð er áhersla á vinsamleg samskipti og vellíðan nemenda og starfsmanna. Í skólanum er öflugt foreldrafélag og er samvinna við foreldra og nærsamfélag gott. Ráðning er tímabundin skólaárið 2025-2026 með möguleika á framlengingu.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Helstu verkefni og ábyrgð

· Veita starfsfólki ráðgjöf og stuðning við að þróa markviss vinnubrögð til að efla málþroska og læsi barna

· Veita kennurum faglegan stuðning þegar kemur að notkun gagnreyndra lestrarkennsluaðferða sem skila árangri í fjölbreyttum nemendahópi

· Leggur fyrir og hefur umsjón með reglulegum lesfimiprófum, hliðarprófunum og öðrum læsisskimunum sem kanna námsframvindu nemenda í lestri. Tekur saman niðurstöður og vinnur áætlanir um inngrip með námsmarkmiðum fyrir nemendur út frá niðurstöðum þeirra.

· Fylgir eftir lestrarstefnu skólans og fer fyrir ýmsum verkefnum sem hvetja til lesturs.

· Sinnir kennslu sem styður við lestur og orðaforðatileinkun nemenda í fjölbreyttum nemendahópi

· Aðstoða nemendur við val á bókum til yndislestrar og skipuleggja kynningar rithöfunda í skóla

· Samstarf við sérfræðiþjónustu skóla á Vesturmiðstöð og sérfræðinga hjá Miðju máls og læsis.

· Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum.

Menntunar- og hæfniskröfur

· Leyfisbréf kennara.eyfisbréf kennara.  

· Háskólamenntun á framhaldsstigi á sviði málþroska og læsis æskileg.

· Reynsla af verkefnum varðandi málþroska og læsi.

· Góð tölvukunnátta

· Lipurð og sveigjanleiki í mannlegum samskiptum

· Góð íslenskukunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.

Auglýsing birt30. apríl 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Barónsstígur 32, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar