

Lífeindafræðingur eða náttúrufræðingur
Lífeindafræðingur, líffræðingur eða einstaklingur með sambærilega menntun óskast til starfa á ónæmisfræðideild, Blóðbanka og ónæmisfræðiþjónustu Landspítala. Á deildinni starfa um 30 manns við þjónusturannsóknir, greiningar og ráðgjöf, kennslu heilbrigðisstétta í ónæmisfræði og vísindarannsóknir. Góður starfsandi er ríkjandi og tækifæri til að vaxa í starfi. Meginhlutverk deildarinnar er að vera leiðandi hvað varðar rannsóknir, greiningu, meðferð og eftirlit ónæmis- og ofnæmissjúkdóma á Íslandi. Auk þess veitir deildin alhliða þjónusturannsóknir á sviði gigtar-, bólgu-, ofnæmis- og sjálfsofnæmissjúkdóma.
Við viljum ráða skipulagðan einstakling með faglegan metnað sem vinnur af nákvæmni og samviskusemi. Viðkomandi þarf að hafa góða samskiptahæfni og eiga auðvelt með að vinna sjálfstætt og í teymi. Við tökum vel á móti nýju fólki og veitum góða einstaklingsmiðaða aðlögun. Starfshlutfall er 100% og um dagvinnu er að ræða. Starfið er laust frá og með 1. júní 2026 eða eftir nánara samkomulagi.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er nú 36 stundir. Markmiðið með styttri vinnuviku er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Íslenska





































