Klettaskóli
Klettaskóli

Klettaskóli - Kennari / þroskaþjálfi

Kennara eða þroskaþjálfa vantar í Klettaskóla, sérskóla fyrir nemendur með þroskahömlun og viðbótarfatlanir. Starfsmenn vinna í teymum og þurfa að hafa góða samstarfs- og samskiptahæfni, vera sveigjanlegir og tilbúnir að takast á við krefjandi en gefandi verkefni.

Klettaskóli er sérskóli fyrir nemendur með þroskahömlun á aldrinum 6-12 ára og þjónar öllu landinu. Eitt af hlutverkum skólans er að veita starfsfólki annarra grunnskóla ráðgjöf og kennslufræðilegan stuðning vegna nemenda sem hafa svipaðar námsþarfir og nemendur í Klettaskóla. Einstaklingsmiðun er í námi nemenda Klettaskóla, byggt er á forsendum hvers nemanda og styrkleikum þeirra. Einkunnarorð skólans eru "Menntun fyrir lífið".

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Starfa í þverfaglegu teymi sem sér um skipulag og framkvæmd kennslu í bekk
  • Vinna einstaklingsnámskrár og námsmat
  • Samstarf við foreldra og aðra fagaðila
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans og taka þátt í skólaþróunarvinnu
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Starfsleyfi til að starfa sem grunnskólakennari/þroskaþjálfi, starfsleyfi fylgi umsókn
  • Sveigjanleiki og framúrskarandi hæfni í samskiptum
  • Hæfni til að vinna í teymi
  • Áhuga á að starfa með börnum
  • Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi
  • Lausnarmiðuð hugsun
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Stundvísi
  • Góð íslenskukunnátta (C1)
Auglýsing birt30. apríl 2026
Umsóknarfrestur11. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Suðurhlíð 9, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.KennariPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Þroskaþjálfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar