

Kennari óskast í Brúarásskóla
Auglýst er eftir grunnskólakennara í hlutastarf og hugsanlega fullt starf frá og með næsta skólaári. Einkum er um að ræða kennslu á yngsta stigi.
Brúarásskóli er samrekinn grunn- og leikskóli í Jökulsárhlíð á Fljótsdalshéraði. Í skólanum er lögð áhersla á samþættingu námsgreina í gegnum fjölbreytt þemaverkefni sem dreifast yfir veturinn. Mikið er lagt upp úr tjáningu og framsetningu verkefna sem nemendur ljúka. Verkgreinum er gert hátt undir höfði í skólanum og boðið upp á fjölbreyttar valgreinar fyrir nemendur í 6.-10 bekk. Skólinn leggur auk þess ríka áherslu á útivist og hreyfingu en góður íþróttasalur er í skólanum og auk þess sparkvöllur og ærslabelgur sem nýtast nemendum vel.
Næsti yfirmaður er skólastjóri Brúarásskóla
Athugið að störfin voru upphaflega auglýst þann 15. apríl með umsóknarfrest til 29. apríl 2026 en þar sem ekki fengust umsóknir kennara með leyfisbréf þá er auglýst aftur og umsóknarfresturinn er til 14. maí 2026.
- Annast kennslu nemenda samkvæmt markmiðum aðalnámskrár í samráði við aðra kennara og skólastjóra.
- Taka virkan þátt í mótun skólastarfsins með velferð nemenda að leiðarljósi.
- Leyfisbréf sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Áhugi á að starfa með börnum.
- Góð hæfni til samvinnu með börnum og fullorðnum.
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Gott vald á íslenskri tungu og áhugi á að nýta upplýsingatækni í kennslu.
- Hreint sakavottorð.
Við skólann eru íbúðir í eigu sveitarfélagsins sem starfsfólk getur leigt.
Íslenska










