Borgarbyggð
Borgarbyggð
Borgarbyggð

Deildarstjóri við Varmalandsdeild Grunnskóla Borgarfjarðar

Grunnskóli Borgarfjarðar auglýsir eftir deildarstjóra fyrir skólaárið 2026-2027

Starf deildarstjóra er 50% starf stjórnanda og 50% starf kennara.

Stjórnendateymi Grunnskóla Borgarfjarðar samanstendur af skólastjóra, aðstoðarskólastjóra, tveimur deildarstjórum stigs/deilda og deildarstjóra stoðþjónustu. Stjórnendateymið vinnur mikið saman, skiptir með sér verkefnum og fagstjórn.

Grunnskóli Borgarfjarðar er þriggja starfsstöðva skóli í Borgarfirði. Starfsstöðvar skólans eru á Hvanneyri þar sem eru 26 nemendur í 1.-5. bekk, á Kleppjárnsreykjum þar sem eru 90 nemendur í 1.-10. bekk og á Varmalandi þar sem eru um 27 nemendur í 1.-4. bekk.

Grunnskóli Borgarfjarðar er teymiskennsluskóli þar sem kennarar vinna í teymum með samkennslu tveggja til fjögurra árganga. Skólinn vinnur eftir gildum heilsueflingar og grænfána og er leiðtogaskóli. Nánar um stefnu skólans er á heimasíðunni www.gbf.is

Helstu verkefni og ábyrgð

Dagleg stjórnun á starfsstöð sem deildarstjóri hefur umsjón með.

Vinnur í stjórnendateymi skólans að faglegu starfi skólans og skipulagi.

Tengiliður farsældar á starfsstöð sem deildarstjóri hefur umsjón með.

Sérkennsla nemenda og forfallakennsla.

Menntunar- og hæfniskröfur

Leyfisbréf kennara er skilyrði

Kennslureynsla í grunnskóla

Viðbótarmenntun í stjórnun

Reynsla af teymisvinnu og áhugi á þróunarstarfi

Framtaksemi og sjálfstæði í vinnubrögðum

Jákvæðni og lipurð í samskiptum

Reynsla af stjórnun

Góð tæknikunnátta og þekking á þeim kerfum sem nýtt eru í skólastarfinu.

Metnaður í starfi

Auglýsing birt29. apríl 2026
Umsóknarfrestur13. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Varmaland-skóli 134934, 311 Borgarnes
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Skipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar