Auðarskóli
Auðarskóli

Kennarar í Auðarskóla, Búðardal

Auðarskóli auglýsir eftir kennurum í samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóla fyrir skólaárið 2026-2027:

  • Umsjónarkennarar
  • Leikskólakennarar
  • List- og verkgreinakennarar

Auðarskóli leitar að metnaðarfullum kennurum sem vilja ná góðum árangri í skólastarfi. Ráðið er í stöðurnar frá 1. ágúst 2026.

Auðarskóli er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli og er staðsettur í Búðardal sem er eini þéttbýliskjarni sveitarfélagsins. Í grunnskólanum eru um 70 nemendur í 1.-10. bekk grunnskólans og um 28 börn í leikskólanum. Tæplega helmingur nemenda grunnskólans stundar tónlistarnám. Einkunnarorð skólans eru Ábyrgð-Ánægja-Árangur.

Dalabyggð leggur áherslu á samhent og fjölskylduvænt samfélag þar sem allir íbúar geta unað vel. Í Dölunum gefast mörg tækifæri til útivistar og hreyfingar og í Búðardal er vel búin líkamsræktarstöð. Glæsilegt íþróttahús og sundlaug staðsett við skólann var tekið í notkun í febrúar.

Lögð er rík áhersla á að í Dalabyggð sé eftirsóknarvert og fjölskylduvænt samfélag og að gott og öflugt menntastarf sé veigamikill þáttur þess. Forgangsmál er að byggja upp gott og heilbrigt starfs- og námsumhverfi þar sem komið er til móts við fjölbreyttar þarfir nemenda í skólasamfélagi sem byggist á lýðræðislegri þátttöku allra.

Menntastefna Dalabyggðar er höfð að leiðarljósi í starfi skólans og er útgangspunkturinn að stuðla að framsækni og vellíðan barna og ungmenna og um leið alls skólasamfélagsins.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf kennara (Leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Reynsla af kennslu er kostur
  • Metnaður og einlægur áhugi á að vinna með börnum og unglingum á faglegan, fjölbreyttan og skapandi hátt
  • Frumkvæði, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni
  • Metnaður til að þróa gæða skólastarf
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði
  • Stundvísi, áreiðanleiki og reglusemi

Umsækjandi má hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga, nr. 19/1940 né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum.

Áhugasamir einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um. Launakjör eru samkvæmt gildandi samningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.Umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi ef við á. Umsókn skal einnig fylgja kynningarbréf.

Umsóknarfrestur er til og með 15. maí 2026.

Nánari upplýsingar veitir: Guðrún G. Halldórsdóttir, skólastjóri, netfang: [email protected], sími: 8628778

Auglýsing birt30. apríl 2026
Umsóknarfrestur15. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Miðbraut 6, 370 Búðardalur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar