

Textílkennari í Hörðuvallaskóla
Hörðuvallaskóli leitar að textílkennara í 80%-100% starf fyrir skólaárið 2026-2027
Í Hörðuvallaskóla eru um 515 nemendur í 1.- 7. árgangi og um 90 starfsmenn. Í skólanum fer fram metnaðarfullt starf og unnið er eftir uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar. Gildi skólans eru virðing, heiðarleiki og þrautseigja.
Í Hörðuvallaskóla er lögð áhersla á skapandi og framsækið skólastarf og eru allir nemendur og kennarar skólans með spjaldtölvur. Mikil áhersla er lögð á fjölbreytta kennsluhætti, teymiskennslu, leiðsagnarnám og unnið er eftir samþættu verkefnamiðuðu þemanámi á miðstigi skólans. Unnið er eftir læsisstefnu skólans með áherslu á PALS og Byrjendalæsi.
Upplýsingar um skólastarfið í Hörðuvallaskóla, stefnu hans og helstu áherslur er að finna á heimasíðu skólans, www.horduvallaskoli.is .
- Kennsla í textíl á yngsta- og miðstigi
- Samstarf við foreldra um nám og velferð nemenda.
- Samstarf innan skólans að faglegum málefnum.
- Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla með áherslu á textíl.
- Einlægur áhugi á að vinna með börnum
- Sköpunargleði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Þolinmæði og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
- Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi.
- Stundvísi og áreiðanleiki.
- Mjög góð íslenskukunnátta bæði í töluðu máli og rituðu.
Starfsmenn Kópavogsbæjar fá frían aðgang í sundlaugar bæjarins
Íslenska










