Sveitarfélagið Árborg
Sveitarfélagið Árborg
Sveitarfélagið Árborg

Kennsluráðgjafi í fjölmenningu til skólaþjónustu

Skólaþjónusta Árborgar auglýsir lausa stöðu kennsluráðgjafa í málefnum barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn til að ganga til liðs við samheldinn og þverfaglegan hóp starfsfólks. Skólaþjónustan er hluti af fjölskyldusviði Árborgar þar sem mikil áhersla er lögð á þverfaglegt samstarf skóla-, velferðar- og frístundaþjónustu.

Skólaþjónustan sinnir margþættum verkefnum með það að leiðarljósi að mæta fjölbreyttum þörfum barna, foreldra og starfsfólks skóla og frístundar. Mikil áhersla er lögð á snemmtækan stuðning, lausnaleit, þróun úrræða, öfluga skólaþróun, fræðslu og námskeið bæði fyrir börn, foreldra og starfsfólk skóla og frístundar.

Í Sveitarfélaginu Árborg búa um 13000 íbúar þar af um 2300 börn í leik- og grunnskólum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • ráðgjöf til starfsfólks, skólastjórnenda og foreldra í leik- og grunnskólum vegna nemenda með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn t.d. varðandi móttöku, stöðumat og hæfniramma
  • ráðgjöf sem tengist kennslu fjöltyngdra nemenda, starfsháttum og starfstengdri leiðsögn
  • mat á stöðu fjöltyngdra nemenda á íslensku og jafnvel móðurmáli
  • eftirfylgd og mat á stuðningsþörf nemenda eftir greiningar eða skimanir
  • þverfaglegt samstarf um málefni nemenda í leik- og grunnskólum
  • fræðsla og námskeið fyrir foreldra og starfsfólk leik- og grunnskóla
  • þverfaglegt samstarf á fjölskyldusviði
Menntunar- og hæfniskröfur
  • háskólapróf sem nýtist í starfi er skilyrði,
  • kennsluréttindi eru skilyrði
  • framhaldsmenntun sem nýtist í starfi æskileg
  • þekking og reynsla af ráðgjafarstörfum v/fjöltyngdra barna er æskileg
  • reynsla af starfi úr leik- og/eða grunnskólum er æskileg
  • reynsla af teymisvinnu og þverfaglegu samstarfi er æskileg
  • lipurð og góð færni í mannlegum samskiptum
  • frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum og góð skipulagshæfni
  • góð íslenskukunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti æskileg
Fríðindi í starfi

Sveigjanlegur vinnutími, full vinnustytting, góður starfsandi, handleiðsla

Auglýsing birt13. apríl 2026
Umsóknarfrestur6. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Austurvegur 2, 800 Selfoss
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar