
Hjallastefnan
Hjallastefnan er kærleiksmiðuð og skapandi lýðræðisstefna. Hjallastefnan rekur í dag 14 leikskóla og þrjá grunnskóla.
Drifkrafturinn í rekstri Hjallastefnunnar er sú skólahugsjón sem allt starf Hjallastefnunnar byggir á. Starfsfólk fyrirtækisins trúir því staðfastlega að starf þeirra skipti miklu máli og að það eigi með vinnu sinni þátt í því að skapa betri framtíð fyrir börn þessa lands.
Jafnréttisuppeldi, jákvæðni, agi, skapandi hugsun, félagsþjálfun og einstaklingsstyrking eru innviðir í námskrá Hjallastefunnar sem við teljum að geti skipt sköpum í þroska þeirra einstaklinga sem okkur er treyst fyrir. Einnig er trú okkar að öflugt fyrirtæki í sjálfstæðum skólarekstri geti skapað nýjungar og unnið að tilraunaverkefnum sem veiti hinu opinbera kerfi nauðsynlegt og tímabært aðhald í því að efla fagstarf sitt og þjónustu – öllum börnum til hagsbóta.
Skólar Hjallastefnunnar starfa sjálfstætt undir stjórn síns leik- eða grunnskólastjóra sem hefur yfirumsjón með og ber ábyrgð á daglegum rekstri skólans. Þannig hefur hver skóli sitt eigið andrúmsloft og sína eigin menningu en allir starfa þeir þó að sameiginlegu markmiði og eftir sömu námskrá sem liggur til grundvallar öllum þáttum fagstarfsins.

Árbær á Selfossi - Skólaárið 2026-2027
Hjallastefnuleikskólinn Árbær á Selfossi óskar eftir umsóknum leikskólakennara fyrir skólaárið 2026-2027.
Árbær er 100 barna sjálfstætt starfandi leikskóli á Selfossi. Mikil útivera, seiglu og sjálfbærninám ásamt jafnrétti, lýðræði og sköpun einkennir starfið.
Sveigjanlegur vinnutími er í boði innan 7 tíma vinnuramma fyrir fullar stöður.
Fyrir frekari upplýsingar má hafa samband við skólastýru á netfangið: [email protected]
Helstu verkefni og ábyrgð
Hópstjórn
- Skipulag og framkvæmd hópastarfs
- Vinna í teymi kjarnans (deildarinnar)
- Foreldrasamskipti og samvinna
- Uppeldi og menntun barna kjarnans
Sérkennsla
- Stuðningur og sérkennsla við einstaka barn / hóp barna
- Vinna í teymi kjarnans (deildarinnar)
- Vinna í sérkennsluteymi ásamt Sérkennslustýru og Yfirþroskaþjálfa
- Skipuleggja og vinna að markmiðum einstaklingsnámskrár
Stuðningskennari / Hlaupari
- Stuðningur við hópstjóra og annað starfsfólk skólans
- Stuðningur við einstaka barn / hóp barna
- Afleysing hópastarfs/sérkennslu eftir þörfum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Að þykja vænt um og hafa áhuga á því að starfa með börnum
- Að hafa áhuga á því að starfa samkvæmt hugmyndafræði Hjallastefnunnar
- Leyfisbréf til leikskólakennslu
- Önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi t.d.:
- Uppeldis- og menntunarfræðingur
- Þroskaþjálfi
- Iðjuþjálfi
- Sálfræði
- Sjálfbærni
- Góð samskiptahæfni og vilji til teymisvinnu
- Gróskuhugarfar, jákvæðni og sveigjanleiki
- Stundvísi og áreiðanleiki
- Góð tök á íslensku
Fríðindi í starfi
- 7 tíma sveigjanlegur vinnudagur fyrir 100% stöður
- Góður matur eldaður á staðnum
- Frábær starfsandi og styðjandi menning á vinnustaðnum
Auglýsing birt13. apríl 2026
Umsóknarfrestur23. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaValkvætt
Staðsetning
Fossvegur 1, 800 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
ÁreiðanleikiDrifkrafturFrumkvæðiHeiðarleikiHreint sakavottorðJákvæðniMannleg samskiptiMetnaðurSjálfstæð vinnubrögðStundvísiSveigjanleikiTeymisvinnaUmönnun (barna/aldraðra/fatlaðra)
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Þroskaþjálfi/sérkennari/iðjuþjálfi óskast í Kópavogsskóla
Kópavogsskóli

Leikskólakennarar
Leikskólinn Jötunheimar

Leikskólasérkennari/Þroskaþjálfi
Leikskólinn Jötunheimar

Deildarstjórar
Leikskólinn Jötunheimar

Deildarstjóri óskast á Kópastein
Kópasteinn

Ert þú kennari? þá er þetta starfið fyrir þig
Leikskólinn Sjáland

Umsjónarkennari á yngsta stigi í Álfhólsskóla 2026-2027
Álfhólsskóli

Íþróttafræðingur/íþróttakennari
Leikskólinn Jötunheimar

Leikskólakennari óskast í frábæran skóla
Vinagarður leikskóli

Umsjónarkennari í einhverfudeild Hraunvallaskóla
Hafnarfjarðarbær

Umsjónarkennari á yngsta og miðstigi - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær

Sérgreinastjóri heilsueflingar og útikennslu
Leikskólinn Laugaland