

Hofsstaðaskóli - textílkennari
Hofsstaðaskóli auglýsir eftir kennara í textílmennt í 50% starf. Textílmennt og aðrar list- og verkgreinar eru kenndar í s.k. smiðjum í lotum í samstarfi við list- og verkgreinakennara. Í skólanum verða 500 nemendur í 1. - 7. bekk og þar starfa um 95 starfsmenn með það að markmiði að hlúa að nemendum námslega og félagslega og koma til móts við áhuga þeirra og getu. Vel er búið að nemendum og starfsmönnum og er öll aðstaða í skólanum til fyrirmyndar.
Í skólanum fer fram metnaðarfullt starf sem er í stöðugri þróun. Kennsluhættir eru fjölbreyttir og vellíðan nemenda í fyrirrúmi í anda menntastefnu Garðabæjar. Læsi, leiðsagnarnám og list- og verkgreinar skipa stóran sess og þjónusta við nemendur með sérþarfir er öflug.
- Skipuleggur nám, kennslu og námsmat í textílmennt í samræmi við aðalnámskrá grunnskóla
- Vinnur á fjölbreyttan hátt að því að virkja nemendur í skapandi starfi
- Hefur umsjón með kennslustofu, búnaði og efniskaupum í samstarfi við annan textílkennara
- Tekur þátt í teymisvinnu með kennurum í list-og verkgreinum ásamt öðrum fagaðilum sem koma að nemendum
- Stuðlar að velferð nemenda og samstarfi við foreldra og fagfólk
- Vinnur að þróun skólastarfs í samráði við stjórnendur og samstarfsfólk
- Kennaramenntun og leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)*
- Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði grunnskóla
- Sérhæfing í kennslu í textílmennt
- Íslenskukunnátta á stigi C1 skv. Evrópska tungumálarammanum
- Reynsla af kennslu í grunnskóla æskileg
- Þekking á fjölbreyttum kennsluháttum og góð tölvukunnátta
- Lipurð og færni í samskiptum ásamt metnaði í starfi
- Ánægja af starfi með börnum og ungmennum
- Frumkvæði, skipulagshæfni, sjálfstæði í vinnubrögðum, stundvísi og samviskusemi
*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019.
- Heilsuræktarstyrkur fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
- Bókasafnskort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
- Menningarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
- Sundlaugarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
Íslenska

















