

Íþróttakennari í Stekkjaskóla - 50% starfshlutfall
Óskað er eftir íþróttakennara í 50% stöðugildi við Stekkjaskóla á Selfossi frá 1. ágúst næstkomandi. Leitað er eftir áhugasömum og framsæknum grunnskólakennara sem vill kenna í skóla sem m.a. leggur áherslu á teymiskennslu, teymisvinnu, tækni og skapandi skólastarf.
Um er að ræða tímabundna stöðu til að kenna íþróttir og sund. Sundkennslan fer fram í Sundhöll Selfoss og íþróttakennslan fer fram í íþróttahúsi Vallaskóla og í fjölnotasal Stekkjaskóla. Íþróttahús verður byggt í 3. áfanga nýbyggingar skólans.
Næsta haust er gert ráð fyrir um 430 nemendum í 1.-9. bekk. Fullsetinn verður skólinn fyrir um 500 nemendur í 1.-10. bekk.
Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1100 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.
- Annast kennslu samkvæmt meginmarkmiðum aðalnámskrá grunnskóla með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda
- Umsjón með daglegu skólastarfi og viðkomandi nemendahópum
- Samskipti á vegum skólans og við foreldra/forráðamenn
- Fylgist með velferð nemenda, hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þeir fái notið sín sem einstaklinga
- Tekur þátt í skólaþróun í samræmi við stefnu skóla og sveitarfélags
- Leyfisbréf grunnskólakennara/ íþróttakennara
- Frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð
- Hæfni og áhugi á skólastarfi
- Góð færni í mannlegum samskiptum
- Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
- Áhugi á skólaþróun og skapandi kennsluháttum mikilvægur
Íslenska










