
Míla hf
Míla er virkur þátttakandi í uppbyggingu framtíðarinnar. Á næstunni munum við sjá nýja og spennandi lausnir vaxa og dafna á Alnetinu. Gervigreind, sýndarheimar, heildrænar fundarlausnir, fjarkennsla og heilsa eru allt svið sem koma til að eflast samhliða öflugum tengingum. Við þurfum á brautryðjendum framtíðar að halda til að styrkja stoðir fjarskipta Íslands.

Hefur þú áhuga á tæknilausnum í fjarskiptum?
Sumarstarf á Tæknisviði Mílu?
Hefur þú áhuga á uppsetningu, prófunum og innleiðingu tæknilausna í fjarskiptum? Við bjóðum spennandi sumarstarf þar sem gefst tækifæri til að kynnast uppsetningu og prófunum á eftirlits- og vöktunarkerfum, taka þátt í innleiðingu lausna og sinna fjölbreyttum raunverkefnum í tæknilegu umhverfi. Starfið veitir verðmæta reynslu og innsýn í uppbygingu og þróun mikilvægra fjarskiptainnviða í samstarfi við sérfræðinga á sviðinu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Uppsetning og prófanir á eftirlitsumhverfi fyrir rafmagns- og rýmisskynjara
- Aðstoð við uppsetningu, stillingar og prófanir á vöktunarkerfum
- Þátttaka í skjölun, skráningu og uppfærslu upplýsinga vegna innleiðingar kerfa
Menntunar- og hæfniskröfur
- Hafa lokið öðru ári í tölvunarfræði eða sambærilegu námi
- Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Þekking eða reynsla af forritun er kostur
- Þekking eða reynsla af SNMP samskiptum er kostur
- Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi og leiða framfarir
Fríðindi í starfi
- 🔋 Miðlægar starfsstöðvar í Reykjavík með hleðslustæði
- 🚿 Hjólageymsla með rafmagni og aðgangur að sturtum
- 🥗 Mötuneyti á staðnum með salatbar og grænkerakostum
- 💪 Metnaðarfullt starfsumhverfi
- 🥳 Öflugt félagslíf á vegum starfsmannafélags og leikherbergi með billiard-borði
Auglýsing birt19. febrúar 2026
Umsóknarfrestur5. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Stórhöfði 22-30, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
MetnaðurSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSkipulag
Hentugt fyrir
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)

Vilt þú vinna að spennandi verkefnum í fjarskiptum?
Míla hf

Tæknilegur vörustjóri
Arion banki

Solution Architect – Mobile Applications | Embla Medical
Embla Medical | Össur

Business Central Specialist | Embla Medical
Embla Medical | Össur

Vörustjóri rekstrarlausna
Advania

Delivery Lead á upplýsingatæknisviði
Arion banki

Full Stack Developer
Svarmi

Hugbúnaðarsérfræðingur – tækifæri til að sérhæfa sig
APRÓ

Framendaforritari í þróunarteymi
dk hugbúnaður ehf.

Leiðtogi í þróun gervigreindarlausna
Advania

Spennandi sumarstörf háskólanema
Norðurál

Hefur þú áhuga á gervigreind, sjálfvirkni og umbótum?
Arion banki