

Glerárskóli: Aðstoðarmatráður
Í Glerárskóla er laus staða aðstoðarmatráðs skólans. Um er að ræða um 85% stöðu með vinnutíma frá kl. 8:00 – 15:00.
Ráðið verður í starfið frá ágúst 2026 til júní 2027 með möguleika á áframhaldandi ráðningu.
Í skólanum eru um 300 nemendur og um 65 starfsmenn.
Glerárskóli vinnur samkvæmt hugmyndafræði Jákvæðs aga og eflingu góðra og jákvæðra samskipta. Skólinn er Grænfánaskóli og stundar úti- og grenndarkennslu auk þess að leggja áherslu á læsi, leiðsagnarnám, góða stoðþjónustu, verkgreinar og teymisvinnu. Glerárskóli leitast við að undirbúa nemendur undir líf og starf með því að aðstoða þá við að finna og efla hæfileika sína, taka ábyrgð á eigin námi og gjörðum og efla andlegt og líkamlegt heilbrigði.
Stoðþjónusta Glerárskóla er gríðarlega öflug og fagleg en það styrkir allt skólastarf í þágu nemenda.
Glerárskóli Erasmus+ vottaður skóli. Glerárskóli er hnetulaus skóli.
Einkunnarorð skólans eru HUGUR-HÖND-HEILBRIGÐI
Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.glerarskoli.is
Leitað er að hugmyndaríkum einstaklingi sem á auðvelt með að sýna sveigjanleika, hafa frumkvæði, sem hefur mikinn metnað fyrir mötuneyti skólans, á auðvelt með öll samskipti og sem leggur áherslu á vellíðan og árangur nemenda í samstarfi við aðra starfsmenn og stjórnendur skólans.
- Aðstoða matráð við gerð og framreiðslu matar
- Útbúa mat fyrir starfsfólk og nemendur
- Útbúa síðdegishressingu fyrir nemendur í frístund
- Sjá um frágang og uppvask eftir máltíðir
- Dagleg þrif í eldhúsi
- Þekking á gerð og framreiðslu matar
- Reynsla af starfi í mötuneyti t.d. í skóla er æskileg
- Nám sem nýtist í starfi er kostur
- Áhugi á framreiðslu matar og öllu sem honum tengist
- Áhugi á að starfa með börnum og starfsfólki mötuneytis undir stjórn matráðar
- Færni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og samstarfsvilji
- Jákvæðni, stundvísi og sveigjanleiki
- Reglusemi og samviskusemi
- Góð íslenskukunnátta í töluðu og rituðu máli
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samræmist starfinu.
Íslenska










