Akureyri
Akureyri
Akureyri

Leikskólinn Hagasteinn: Starfsfólk í leikskóla

Leikskólinn Hagasteinn á Akureyri óskar eftir að ráða starfsfólk. Um er að ræða ótímabundin störf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í ágúst 2026.

Í leikskólanum Hagasteini verður lögð áhersla á Jákvæðan aga, hæglæti, barnasáttmálann, umhverfismennt og vellíðan með það að markmiði að skapa gott náms- og starfsumhverfi.

Þar sem um nýjan leikskóla er að ræða mun starfsfólk taka þátt í að byggja upp starf skólans frá grunni og því er um einstakt tækifæri að ræða fyrir metnaðarfulla einstaklinga.

Sýn okkar er: faglegur skóli, starfsánægja og fagleg forysta með gleði, traust og virðingu að leiðarljósi.

Einkunnarorð skólans eru: Hæglæti – Hugrekki - Hlýja

Næsti yfirmaður starfsmanns er deildarstjóri.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinna að uppeldi og menntun barna. Fylgjast vel með velferð þeirra og hlúa að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklingar.
  • Taka þátt í gerð skólanámskrár og mati á starfsemi leikskólans undir stjórn deildastjóra og eða skólastjóra.
  • Taka þátt í faglegu starfi skólans undir stjórn deildarstjóra og eða skólastjóra.
  • Vinna í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn barnanna.
  • Sitja fundi, sem haldnir eru á vegum leikskólans.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Óskað er eftir sjálfstæðum, ábyrgum og jákvæðum einstaklingum.
  • Mikilvægt er að eiga auðvelt með mannleg samskipti og vera tilbúinn að takast á við skemmtilegt og krefjandi starf með börnum.
  • Viðkomandi þarf að vera sveigjanlegur í starfi og vera tilbúnir að ganga í ýmis störf.
  • Reynsla af starfi með börnum er kostur.
  • Gott vald á íslensku, bæði í rituðu og töluðu máli er nauðsynleg.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Auglýsing birt23. júní 2026
Umsóknarfrestur2. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Naustagata 6
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Sveigjanleiki
Starfsgreinar
Starfsmerkingar