Austurbæjarskóli
Austurbæjarskóli

Skólaliði

Austurbæjarskóli auglýsir starf skólaliða laust til umsóknar. Starfið er laust nú þegar.

Austurbæjarskóli er rótgróinn grunnskóli í miðbæ Reykjavíkur. Í skólanum eru um 300 nemendur í 1.-10. bekk og um 60 starfsmenn.

Framtíðarsýn Austurbæjarskóla er: Framsækinn skóli fyrir alla og einkunnarorð skólans vöxtur, víðsýni, vellíðan og vilji til að gera betur.

Lögð er áhersla á vinsamleg samskipti og vellíðan nemenda og starfsmanna. Í Austurbæjarskóla er lögð áhersla á fjölbreytta kennsluhætti, samvinnu auk þess sem list- og verkgreinar skipa stóran sess í skólastarfinu.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Að sjá um daglegar ræstingar. 
  • Að sinna nemendum í leik og starfi
  • Að sinna tilfallandi verkefnum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Hæfni í samskiptum
  • Reynsla og áhugi á að starfa með börnum
  • Nákvæmni í vinnubrögðum
  • Íslenskukunnátta skilyrði
Auglýsing birt22. júní 2026
Umsóknarfrestur30. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Barónsstígur 32, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Mannleg samskipti
Starfsgreinar
Starfsmerkingar