

Yfirmatreiðslumaður á Brasserie Ask
Brasserie Askur leitar að öflugum og reynslumiklum yfirmatreiðslumanni til að ganga til liðs við samhent og metnaðarfullt teymi okkar. Unnið er á 2-2-3 vöktum.
Brasseri Askur er einn elsti og rótgrónasti veitingastaður landsins, staðsettur í hjarta Reykjavíkur. Við höfum lengi verið þekkt fyrir fjölbreyttan og bragðgóðan mat í afslöppuðu og notalegu umhverfi þar sem fjölskyldur, vinir og samstarfsfólk koma saman og njóta góðrar þjónustu og matargerðar.
Yfirmatreiðslumaður ber ábyrgð á því að eldhúsið sé vel skipulagt, hráefnanýting góð, gæði stöðug og að teymið vinni eftir skýrum verkferlum. Við leitum að einstaklingi sem getur bæði leitt fólk og tekið virkan þátt í daglegum verkefnum.
Helstu verkefni:
- Yfirumsjón með hádegishlaðborði, steikhlaðborði, a la carte matseðli og veisluþjónustu.
-
Þjálfun, leiðsögn og eftirfylgni með kokkum og aðstoðarfólki í eldhúsi.
-
Tryggja og viðhalda hreinlæti, matvælaöryggi , skipulagi eldhúss og innra eftirlit séu í lagi á hverjum degi.
-
Vinna markvisst að lækkun matarkostnaðar, minni sóun og betri framlegð.
-
Ábyrgð á pöntunum, vörumóttöku, birgðahaldi og góðri nýtingu hráefna.
-
Þróun og endurbætur á matseðlum, tilboðum og veislumat í samráði við eigendur.
- Halda góðum aga, jákvæðum starfsanda og faglegum vinnubrögðum í eldhúsinu.
Hæfniskröfur:
-
Reynsla af eldhússtörfum nauðsynleg
-
Jákvætt viðmót og þjónustulund
-
Hæfni til að vinna undir álagi
-
Frumkvæði, sjálfstæði og snyrtimennska
-
Hreint sakavottorð
Við bjóðum:
-
Skemmtilegan og lifandi vinnustað með góðum starfsanda
-
Sveigjanlegar vaktir og sanngjörn launakjör
Ef þú hefur brennandi áhuga á matargerð og vilt vera hluti af reynslumiklu og samheldnu teymi, þá viljum við endilega heyra frá þér!
Athugið að unnið er úr umsóknum um leið og þær berast.
Umsóknir og fyrirspurnir má senda á [email protected], eða hérna í gegnum Alfred.is
Athugið að unnið er úr umsóknum um leið og þær berast.
Enska
Íslenska










