
Frístundaleiðbeinandi/frístundaráðgjafi í félagsmiðstöðvarnar í Breiðholti
Frístundamiðstöðin Miðberg heldur utan um starfsemi frístundaheimila og félagsmiðstöðva í Breiðholti. Frístundamiðstöðin stendur fyrir fjölbreyttu starfi fyrir börn og ungmenni frá aldrinum 6 – 16 ára. Markmiðið er að veita börnum og ungmennum innihaldsríka þjónustu í frítíma þeirra. Sex frístundaheimili og fjórar félagsmiðstöðavar starfa undir frístundamiðstöðinni.
Félagsmiðstöðvarnar Bakkinn, Hólmasel og Hundrað&ellefu eru starfræktar fyrir börn og unglinga 10 – 16 ára sem búsett eru í Breiðholti. Opið er í félagsmiðstöðvunum mánudags-, þriðjudags-, miðvikudags- og föstudagskvöld.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Í boði eru hlutastörf 20 – 27% 1-2 kvöld í viku.
Vinnutíminn er breytilegur en algengast er 17/19-21:45 á mánudags-miðvikudagskvöldum og 17:00-22:45 á föstudögum. Frágangur og ígrundun er í lok hverrar vaktar. Starfsmannafundir eru annan hvern mánudag frá 17:00-19:00 og eru inni í starfshlutfalli.
Um er að ræða tímabundna ráðningu frá ágúst 2025 - júní 2026.
- Skipulagning og framkvæmd á faglegu starfi samvinnu við þátttakendur og aðra starfsmenn.
- Veita börnum með einstakar þarfir leiðsögn og stuðning.
- Samskipti og samstarf við börn, unglinga og samstarfsfólk.
- Framfylgja stefnu skóla – og frístundasviðs í málefnum frítímans.
- Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi.
- Áhugi á að vinna með börnum og ungmennum.
- Færni í samskiptum.
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Fjölbreytt áhugsvið sem nýtist í félagsmiðstöðvastarfi.
- Góð íslenskukunnátta ((B2 samkvæmt samevrópska tungumálarammanum).












