

Deildarstjóri viðskiptaþróunar Coripharma
Við leitum að öflugum stjórnanda til að leiða alþjóðlegt teymi hjá Coripharma sem sér um viðskipaþróun fyrirtækisins. Viðskiptaþróun tilheyrir sölueiningu Coripharma og hefur yfirumsjón með sölu á lyfjum og lyfjahugviti á alþjóðlegum vettvangi. Starfsstöðin er á Íslandi.
Ert þú drífandi, lausnamiðaður og jákvæður einstaklingur með framúrskarandi samskiptahæfileika? Þá er þetta rétta starfið fyrir þig.
Deildarstjóri viðskiptaþróunar sér um að stýra teyminu sem og tekur þátt í daglegum verkefnum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sala á lyfjum og lyfjahugviti til annarra lyfjafyrirtækja á alþjóðlegum vettvangi
- Greining á viðskiptatækifærum, ábyrgð á verð- og markaðsstefnu sem og tilboðsgerð til viðskiptavina
- Yfirumsjón með samningaviðræðum og viðeigandi eftirfylgni á undirrituðum samningum
- Efla núverandi viðskiptasambönd sem og byggja upp ný tengsl
- Þverfaglegt samstarf við aðrar deildir fyrirtækisins til að ná fram settum markmiðum
- Stefnumótun deildarinnar sem og dagleg stjórnun
- Áætlanagerð og rekstarstýring innan deildarinnar
- Þróun og efling teymisins
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólagráða í lyfjafræði, viðskiptafræði, lífvísindum eða skyldum greinum
- Reynsla og þekking af sölu lyfja og lyfjahugvits á alþjóðlegum vettvangi, ásamt öflugu tengslaneti innan lyfjageirans
- Yfirgripsmikil reynsla af m.a. samningaviðræðum, verð- og markaðsstefnum og lyfjaskráningum
- Leiðtogahæfni og reynsla af stjórnunarstörfum
- Framúrskarandi samskiptahæfni og þjónustulund
- Mjög góð færni í íslensku og ensku
Fríðindi
- Sveigjanlegur vinnutími
- Mötuneyti
Coripharma er íslenskt nýsköpunarfyrirtæki í örum vexti sem sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og útflutningi samheitalyfja. Hjá Coripharma starfar fjölbreyttur hópur einstaklinga með ólíka menntun og bakgrunn. Í dag starfa um 220 einstaklingar hjá fyrirtækinu.
Frá því félagið hóf starfsemi árið 2018 hefur það hafið framleiðslu á 26 lyfjum og er með 21 ný lyf í þróun. Nánari Upplýsingar um Coripharma má finna á www.coripharma.is
Umsóknarfrestur er til og með 31. október 2025.













