Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Almennur starfsmaður - Heimahjúkrun HH

Heimahjúkrun Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins óskar eftir almennum starfsmanni í 30-90% ótímabundið starf. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi. Um er að ræða starf við heimahjúkrun á dag-, kvöld- og helgarvöktum.

Heimahjúkrun Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins sinnir heimahjúkrun í Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði og er með aðsetur í nýju og glæsilegu húsnæði að Miðhrauni 4 í Garðabæ. Hlutverk heimahjúkrunar er að veita einstaklingsmiðaða hjúkrun sem er sérsniðin að þörfum hvers og eins þar sem forvarnir, heilsuvernd, heilsuefling, fagleg þekking og samstarf eru höfð að leiðarljósi.

Nánari upplýsingar má finna inni á www.heilsugaeslan.is

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfið er mjög fjölbreytt og gefandi. Starfsmaður aðstoðar við umönnun ásamt því að veita skjólstæðingum félagslegan stuðning. Hann vinnur náið í teymi ásamt sjúkraliðum og hjúkrunarfræðingum þar sem teymisstjóri sem er hjúkrunarfræðingur fer fyrir teyminu. Starfsmaður mun hafa bifreið til afnota á vinnutíma. Starfið gerir kröfu um góða íslenskukunnáttu.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi 
  • Reynsla af ummönnun æskileg 
  • Sjálfstæði í starfi 
  • Mikil samskiptahæfni og rík þjónustulund 
  • Gilt ökuleyfi 
  • Hreint sakavottorð 
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði
Fríðindi í starfi
  • Heilsustyrkur
  • Samgöngustyrkur
Auglýsing birt19. desember 2025
Umsóknarfrestur12. janúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Miðhraun 4, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar