Garðabær
Garðabær
Garðabær

Álftanesskóli - umsjónakennarar á miðstig

Álftanesskóli er grunnskóli fyrir nemendur í 1.-10. bekk. Í skólanum eru tæplega 390 nemendur og 75 starfsmenn. Áhersla er lögð á metnaðarfullt starf, vellíðan nemenda og umhverfisvernd. Í Álftanesskóla er áhersla lögð á að hver nemandi fái kennslu við hæfi til að þroska hæfileika sína – allir eru einstakir. Álftanesskóli starfar eftir hugmyndafræði og vinnuaðferðum Uppeldis til ábyrgðar- uppbygging sjálfsaga.

Helstu verkefni og ábyrgð

• Skipuleggur nám og kennslu nemenda á miðstigi

• Sinnir kennslu og hefur umsjón með nemendum

• Vinnur að skólaþróun með stjórnendum og samstarfsmönnum

• Stuðlar að velferð nemenda og samstarfi við foreldra og annað fagfólk

• Tekur þátt í teymisvinnu

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun og leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði grunnskóla
  • Íslenskukunnátta á stigi C1 skv. evrópska tungumálarammanum
  • Lipurð og færni í mannlegum samskiptum ásamt metnaði í starfi
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Áhugi á skólaþróun
  • Góð tölvukunnátta
  • Reynsla af starfi í grunnskóla og/eða starfi með börnum er æskileg

*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019.

Fríðindi í starfi
  • Heilsuræktarstyrkur fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
  • Bókasafnskort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
  • Menningarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
  • Sundlaugarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
  • Starfsfólk í skólum Garðabæjar hefur möguleika á að sækja um styrki í Þróunarsjóði leik- og grunnskóla Garðabæjar og er þeim ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi.
Auglýsing birt16. apríl 2026
Umsóknarfrestur1. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Breiðumýri, 225 Breiðumýri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Vaktaskipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar