Vatnsendaskóli
Vatnsendaskóli
Vatnsendaskóli

Vatnsendaskóli leitar að kennara í hönnun og smíði

Vatnsendaskóli leitar að jákvæðum og áhugasömum kennara í hönnun og smíði.

Vatnsendaskóli er heildstæður grunnskóli með um 530 nemendur og tæplega 90 starfsmenn. Skólinn er staðsettur í fallegu umhverfi við Elliðavatn. Áhersla er lögð á teymiskennslu, útikennslu og fjölbreytta kennsluhætti. Góður starfsandi er í skólanum og vinnuaðstæður góðar. Unnið er samkvæmt uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar og er Vatnsendaskóli Réttindaskóli Unicef. Einkunnarorð skólans eru virðing, vinátta, samvinna og skapandi starf.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Kennsla í hönnun og smíði.
  • Vinna að skólaþróun með stjórnendum og samstarfsfólki. 
  • Stuðla að velferð nemenda.
  • Þátttaka í teymisvinnu. 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennsluréttindi
  • Menntun og hæfni til að kenna hönnun og smíði.
  • Góð hæfni í samskiptum við börn og fullorðna.
  • Þekking á kennslu með notkun rafrænna miðla æskileg.
  • Þolinmæði og hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
  • Stundvísi og áreiðanleiki skilyrði.
  • Góð færni í íslensku, töluðu og rituðu máli.
Auglýsing birt16. apríl 2026
Umsóknarfrestur30. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Funahvarf 2, 203 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.SmíðarPathCreated with Sketch.Stundvísi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar