Vatnsendaskóli
Vatnsendaskóli
Vatnsendaskóli

Húsvörður óskast í Vatnsendaskóla

Vatnsendaskóli óskar eftir húsverði í fjölbreytt og lifandi starf

Í Vatnsendaskóla eru um 530 nemendur í 1.-10. bekk og eru starfsmenn skólans tæplega 90. Í skólanum er góður starfsandi og áhersla er á gott starfsumhverfi. Skólinn er staðsettur í fallegu umhverfi við Elliðavatn. Unnið er samkvæmt uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar og eru einkunnarorð skólans virðing, vinátta, samvinna og skapandi starf.

Ráðningartími og starfshlutafall

Um er að ræða 100% starf og miðað við ráðningu í byrjun ágúst eða eftir samkomulagi.

Upplýsingar um skólastarfið í Vatnsendaskóla, stefnu hans og helstu áherslur er að finna á heimasíðu skólans, vatnsendaskoli.is.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Hefur daglegt eftirlit með húsnæði og þrifum skólans, húsgögnum, áhöldum og lóð. 
  • Sinnir daglegri verkstjórn skólaliða og skipuleggur störf þeirra við þrif, gæslu, aðstoð í mötuneyti/matsal og önnur dagleg störf.
  • Sér um að opna skóla í upphafi dags og gengur frá í lok dags.
  • Sinnir minniháttar viðhaldi á eignum og búnaði, tilkynnir um frekari viðhaldsþörf, jafnt innanhúss sem utan og á samskipti við eignasvið Kópavogsbæjar.
  • Sér um að hiti, lýsing og loftræsting sé fullnægjandi og að öll kerfi starfi rétt.
  • Sér um aðgangsstýringar skólahúsnæðis.
  • Aðstoðar við stærri fundi eða viðburði í skólanum.
  • Sér um að sorp sé flokkað, fjarlægt og lóðir séu þrifalegar.
  • Sér um snjómokstur og hálkueyðingu við innganga skólans sem og samskipti við þjónustumiðstöð vegna moksturs/hálkueyðingar á stærri svæðum.
  • Sér um innkaup á hreinlætis- og rekstrarvörum og öðru sem snýr að viðhaldi húss og búnaðar.
  • Sinnir ýmsum útréttingum fyrir skólann.
  • Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Iðnmenntun er kostur.
  • Mjög góð almenn verk- og tæknikunnátta.
  • Reynsla og þekking sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af stjórnun verkefna og starfsmannahópa æskileg.
  • Þjónustulipurð og góð hæfni í samskiptum við börn og fullorðna.
  • Reglusemi, samviskusemi, snyrtimennska, stundvísi og áreiðanleiki.
  • Góð skipulagshæfni og sjálfstæði og frumkvæði í starfi.
  • Almenn ökuréttindi og þarf að hafa bíl til umráða. Greitt er kílómetragjald vegna sendiferða samkvæmt kjarasamningi.
  • Góð færni í íslensku, töluðu og rituðu máli.
Fríðindi í starfi

Starfsmenn Kópavogsbæjar fá frían aðgang í sundlaugar bæjarins

Auglýsing birt16. apríl 2026
Umsóknarfrestur5. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Funahvarf 2, 203 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar