Garðabær
Garðabær
Garðabær

Heilsuleikskólinn Holtakot - leikskólakennari

Heilsuleikskólinn Holtakot auglýsir eftir leikskólakennara í 100% starfshlutfall.Leikskólinn er fjögurra deilda leikskóli þar sem lögð er áhersla á hreyfingu, listsköpun og hollt matarræði. Skólinn er Grænfánaskóli og starfar eftir "Uppeldi til ábyrgðar".Einkunnarorð skólans eru: Jákvæðni, virðing og öryggi. Áhersla er lögð á metnaðarfullt starf.Stefna leikskólans í starfsmannahaldi er að í skólanum starfi uppeldismenntaðir starfsmenn af báðum kynjum. Heimasíða leikskólans www.holtakot.is

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinna að uppeldi og menntun barnanna undir stjórn deildarstóra
  • Vinna að faglegu starfi deildar
  • Tekur þátt í foreldrasamvinnu
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf til kennslu, önnur uppeldisfræðimenntun, þroskaþjálfamenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi*
  • Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði leikskóla
  • Reynsla af starfi í leikskóla eða starfi með börnum er æskileg
  • Ánægja af því að starfa með börnum
  • Áhugi á heilsueflandi leikskólastarfi og hreyfingu
  • Frumkvæði, samskiptahæfni og sjálfstæði í vinnu
  • Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum


*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019.

Fríðindi í starfi
  • Full stytting eða einn frídagur í mánuði og hluti af styttingu safnað í frídaga (sem teknir eru utan sumarorlofstímabils)
  • Leikskólinn er lokaður í dymbilviku og 2. janúar vegna vinnustyttingar starfsfólks
  • Opnunartími leikskólans er 7:30-16:30 mánud.- fimmtud. og 7:30-16:00 á föstudögum
  • Skipulagsdagar eru fimm á skólaári og eru samræmdir í leik- og grunnskólum Garðabæjar
  • Starfsmannaafsláttur er af leikskólagjöldum og forgangur inn í leikskóla fyrir börn stafsmanna sem búsettir eru í Garðabæ
  • Heilsuræktarstyrkur fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
  • Bókasafnskort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
  • Menningarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
  • Sundlaugarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
Auglýsing birt13. apríl 2026
Umsóknarfrestur30. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Breiðamýri, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.KennslaPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar