

Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar- Hrafnista Nesvellir
Hefur þú áhuga á að prófa þig áfram í stjórnunarstöðu en vilt á sama tíma fá að sinna hjúkrun?Þá erum við mögulega að leita að þér. Hrafnista Nesvöllum óskar eftir að ráða til sín aðstoðardeildarstjóra hjúkrunar í 80-100% starf.Framundan eru spennandi tímar á Nesvöllum en í vetur fer heimilið úr einni deild með 60 íbúa í þrjár deildir með samtals 140.
Aðstoðarhjúkrunardeildarstjóri stendur hjúkrunarvaktir og er staðgengill deildarstjóra í fjarveru hans og aðstoðar við ýmis verkefni tengd rekstri og stjórnun deildar.
Aðstoðarhjúkrunardeildarstjórar eru sömuleiðis með ákveðin fagleg ábyrgðarsvið á deildinni og er vaktafyrirkomulag eftir samkomulagi.Við leitum að jákvæðum, lausnamiðuðum og drífandi leiðtoga sem hefur áhuga á að veita framúrskarandi og faglega þjónustu til handa íbúum heimilisins og aðstandendum þeirra.
Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar er hluti af stjórnendahópi Hrafnistu.
- Almenn hjúkrun
- Aðstoð við stjórnun og rekstur hjúkrunardeildar
- Skipulag á störfum starfsfólks í samræmi við þarfir þjónustuþega
- Eftirlit og mat á gæðum hjúkrunar
- Ráðgjöf og fræðsla til þjónustuþega og aðstandenda
- Teymisvinna
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Reynsla af stjórnun kostur
- Reynsla af RAI mælitækinu kostur
- Frumkvæði, jákvæðni og faglegur metnaður
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Heilsuræktarstyrkur
- Samgöngustyrkur með strætó
- Stuðningur til framþróunar í formi leyfa á launum og námstyrkja
- Við bjóðum upp á jákvæðan og skemmtilegan starfsanda, áhugaverð verkefni og starf sem er í sífelldri þróun.




















