Landspítali
Landspítali
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á göngudeild innkirtla og efnaskipta

Göngudeild innkirtla og efnaskipta á Landspítala óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing til starfa. Deildin sérhæfir sig í þjónustu við einstaklinga með innkirtlasjúkdóma og leggur áherslu á faglega, persónulega og góða þjónustu.

Starfið felst í að sinna einstaklingum með innkirtlasjúkdóma, aðra en sykursýki. Um getur verið að ræða einstaklinga með ofvirkan skjaldkirtil, sem og sjúkdóma í nýrnahettum eða heiladingli. Að auki sjá hjúkrunarfræðinar um innkirtlarannsóknir þar sem kannað er hvort einstaklingar séu með skort eða offramleiðslu á ákveðnum hormónum.

Við sækjumst eftir hjúkrunarfræðingi sem þrífst á spennandi verkefnum, sýnir þjónustulund, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum auk þess að eiga auðvelt með að vinna í teymi.

Deildin er staðsett í nýuppgerðu húsnæði á Eiríksstöðum, Eiríksgötu 5. Á deildinni starfar öflugt teymi heilbrigðisstarfsfólks með sterka framtíðarsýn á þjónustu við sjúklinga þar sem unnið er eftir gagnreyndri þekkingu. Við leggjum áherslu á gott starfsumhverfi, samvinnu og faglega þróun.

Starfið er laust nú þegar eða eftir nánara samkomulagi. Nýr starfsmaður fær góða aðlögun og stuðning frá reyndum hjúkrunarfræðingum deildarinnar.

Education and requirements
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Jákvætt lífsviðhorf og framúrskarandi samskiptahæfileikar
Skipulögð, sjálfstæð og nákvæm vinnubrögð
Íslenskukunnátta áskilin
Responsibilities
Eftirlit einstaklinga með sjúkdóma í innkirtlum (t.d. skjaldkirtli, nýrnahettum eða heiladingli)
Fræðsla og stuðningur til sjúklinga og aðstandenda
Þátttaka í teymisvinnu
Þátttaka í gæðastarfi og þróun þjónustu innan deildarinnar
Önnur verkefni í samráði við deildarstjóra
Advertisement published2. October 2026
Application deadline12. October 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Type of work
Professions
Job Tags