Landspítali
Landspítali
Landspítali

Sérfræðilæknir á Sýkla- og veirufræðideild

Laust er til umsóknar starf sérfræðilæknis á sýkla- og veirufræðideild (SVEID) Landspítala. Um er að ræða fjölbreytt sérfræðistarf þar sem áhersla er lögð á faglega þróun, gæði, kennslu og vísindastarf.

Starfshlutfall er 100%, nema að um annað sé samið. Skilyrði er sérfræðimenntun í sýkla- og/ eða veirufræði. Umsækjanda er gefinn kostur á því að starfa annaðhvort á sviði sýklafræði eða veirufræði, eða á báðum sviðum (sem væri æskilegt). Unnið er í dagvinnu og á bakvöktum með viðveru um helgar og á hátíðisdögum. Starfið er laust eftir samkomulagi.

Sýkla- og veirufræðideild Landspítala er þjónustu- og tilvísunarrannsóknastofa fyrir Ísland á sviði bakteríu-, veiru-, sveppa- og sníkjudýrafræði. Deildin vinnur með sóttvarnarlækni og öðrum heilbrigðisstofnunum að bættri lýðheilsu og öflun faraldsfræðilegra gagna. Jafnframt sinnir deildin menntun heilbrigðisstarfsfólks og vísindarannsóknum.

Starfsemi deildarinnar er á tveimur stöðum, í Ármúla 1a og á lóð Landspítala við Barónsstíg.

Á deildinni starfa um 80 einstaklingar, þar af eru nú sjö sérfræðilæknar auk sérfræðilækna í tímavinnu. Fjórir almennir læknar eru nú á deildinni.

Education and requirements
Íslenskt sérfræðileyfi í sýkla- og/eða veirufræði eða uppfyllt skilyrði um íslenskt sérfræðileyfi, sem aflað yrði hið fyrsta
Íslensku- og enskukunnátta
Þekking og reynsla af veirufræði og/ eða bakteríu-, sveppa- og sníkjudýrafræði
Góð samskiptahæfni
Hæfni til að starfa bæði sem hluti af teymum og sjálfstætt
Þekking og reynsla af gæða-, öryggis- og umbótastarfi er æskileg
Reynsla af kennslu og vísindastörfum er æskileg
Responsibilities
Almenn sérfræðilæknisstörf á Sýkla- og veirufræðideild
Þátttaka í faglegri umsjón sérfræðilækna með starfseiningum deildarinnar
Val, þróun og innleiðing nýrra rannsókna- og greiningaaðferða í samráði við yfirlækni og aðra stjórnendur
Frumkvæði og þátttaka í gæðastjórnun
Túlkun og staðfesting rannsóknarniðurstaðna
Almenn ráðgjöf á sviði sýkla- og veirufræði til starfsfólks Landspítala og til annarra stofnana og fagaðila
Þátttaka í vöktum sérfræðilækna (bakvaktir með viðveru á hátíðisdögum og um helgar)
Kennsla og leiðsögn í faginu fyrir heilbrigðisstarfsfólk og nema
Þátttaka í vísindarannsóknum á sviði sýkla- og veirufræði er æskileg
Önnur verkefni sem taka mið af þekkingu og reynslu viðkomandi
Advertisement published2. October 2026
Application deadline26. October 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Basic skills
Type of work
Professions
Job Tags