Landspítali
Landspítali
Landspítali

Iðjuþjálfi - Vertu hluti af öflugu teymi iðjuþjálfa á Landakoti

Við leitum að iðjuþjálfa með áhuga á endurhæfingu til starfa með okkur á Landakoti. Þar starfar góður og samhentur hópur iðjuþjálfa og sérhæfðs aðstoðarfólks og hentar starfið jafnt reynslumiklum sem nýútskrifuðum iðjuþjálfum. Mikill stuðningur í boði fyrir rétta aðilann.

Markmið iðjuþjálfunar á Landakoti er að gera einstaklinginn eins sjálfbjarga og geta hans og vilji leyfir. Íhlutun er fjölbreytt og áhersla á þverfaglega teymisvinnu.

Innan iðjuþjálfunar á Landspítala starfa um 40 iðjuþjálfar og sérhæft aðstoðarfólk á ýmsum starfseiningum spítalans. Störf okkar eru fjölbreytt og gefst starfsfólki tækifæri á að öðlast víðtæka þekkingu innan fagsins. Mikið faglegt starf er unnið og eru ýmsir möguleikar á endurmenntun.

Við leggjum mikla áherslu á að taka vel á móti nýju samstarfsfólki og veita góða aðlögun. Áhugasömum er bent á að hafa samband við Svanborgu Guðmundsdóttur, yfiriðjuþjálfa á Landakoti, til að fá nánari upplýsingar.

Unnið er í dagvinnu og boðið er upp á sveigjanlegan vinnutíma. Starfshlutfall er 80-100% og er starfið laust frá 1. nóvember 2026 eða samkvæmt nánara samkomulagi. Vinnuvika í fullu starfi er 36 klukkustundir.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð á þeirri iðjuþjálfun sem hann veitir og mat á árangri meðferðar
  • Umsjón yfir sinni íhlutun s.s. handaþjálfun, ADL/IADL þjálfun o.s.frv
  • Skráning og skýrslugerð
  • Fræðsla og skipulagning starfa aðstoðarfólks iðjuþjálfa á deild/um
  • Fræðsla til sjúklinga og aðstandenda
  • Þátttaka í þverfaglegu samstarfi/teymi
  • Þátttaka í fagþróun
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt starfsleyfi sem iðjuþjálfi
  • Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðhorf
  • Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Góð íslenskukunnátta áskilin
Advertisement published23. September 2026
Application deadline21. October 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Hringbraut Landspítali , 101 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags