Landspítali
Landspítali
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á kvenlækningadeild

Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa á kvenlækningadeild 21A á Landspítala. Í boði er spennandi, krefjandi og líflegt starfsumhverfi, góður starfsandi og fjölbreytt tækifæri til faglegrar þróunar.

Á deildinni starfar samhent teymi starfsfólks sem veitir fjölþætta heilbrigðisþjónustu allan sólarhringinn. Kvenlækningadeild er annars vegar göngudeild, bráðamóttaka og aðgerðarstofa og hins vegar dag- og legudeild. Deildin sinnir skjólstæðingum með góðkynja og illkynja sjúkdóma í grindarholi og brjóstum sem og skjólstæðingum frá öðrum sérgreinum almennra skurðlækninga. Þá sinnir deildin bráðatilvikum vegna kvensjúkdóma utan opnunartíma bráðaþjónustu kvennadeilda.

Starfshlutfall er frá 50-100% og er starfið laust frá 1. desember 2026 eða eftir samkomulagi.

Education and requirements
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Faglegur metnaður, frumkvæði og ábyrgð í starfi
Jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar
Hæfni og geta til að starfa í teymi
Hæfni til að takast á við fjölþætt, breytileg og bráð verkefni hjúkrunar kvenna og fjölskyldna þeirra
Góð íslensku- og enskukunnátta
Responsibilities
Ákveða, skipuleggja og veita hjúkrunarmeðferð fyrir og eftir aðgerðir kvenna
Skipuleggja og veita fræðslu til sjúklinga og aðstandenda
Virk þátttaka í teymis- og umbótastarfi á deild
Advertisement published30. September 2026
Application deadline14. October 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Advanced
Type of work
Professions
Job Tags