Landspítali
Landspítali
Landspítali

Hjúkrunarfræðingar á barnadeild Barnaspítala Hringsins

Langar þig að starfa í fjölbreyttu, gefandi og faglega metnaðarfullu umhverfi þar sem börn og fjölskyldur þeirra eru í forgrunni?

Framundan eru ný og spennandi verkefni á Barnadeild Barnaspítala Hringsins og af því tilefni viljum við fjölga í okkar öfluga og samhenta hópi. Við leitum að hjúkrunarfræðingum sem hafa áhuga á barna- og fjölskylduhjúkrun og vilja taka þátt í áframhaldandi þróun og uppbyggingu þjónustunnar með okkur.

Við bjóðum jafnt velkomna reynda hjúkrunarfræðinga sem og nýútskrifaða sem vilja öðlast dýrmæta reynslu og byggja upp sérþekkingu í barnahjúkrun. Starfshlutfall er 50 - 100%, unnið er í vaktavinnu og störfin eru laus frá 01.12.2026 eða eftir samkomulagi.

Á Barnadeildinni tekur á móti þér öflugur og metnaðarfullur hópur fagfólks. Við leggjum áherslu á góða einstaklingshæfða aðlögun undir leiðsögn reyndra hjúkrunarfræðinga, gott samstarf og stuðning í starfi. Starfsumhverfið er líflegt og fjölbreytt og fjölmörg tækifæri eru til að efla þekkingu í barnahjúkrun, þróa faglega færni og styrkja sjálfstæð vinnubrögð.

Deildin sinnir breiðum hópi barna frá fæðingu að 18 ára aldri og fjölskyldum þeirra. Þar er veitt fjölbreytt heilbrigðisþjónusta með hugmyndafræði fjölskylduhjúkrunar að leiðarljósi. Áhersla er lögð á öryggismenningu og heilnæmt starfsumhverfi þar sem fagfólk býr við sálrænt öryggi og fær tækifæri til að vaxa og þróast í starfi.

Við erum á spennandi tímamótum og leitum að samstarfsfólki sem vill taka þátt í þeirri vegferð með okkur.

Education and requirements
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Framúrskarandi færni í samskiptum og teymisvinnu
Áhugi á barna- og fjölskylduhjúkrun
Hæfni og geta til að starfa í teymi
Faglegur metnaður og sjálfstæð vinnubrögð
Góð íslensku- og enskukunnátta
Hreint sakavottorð
Responsibilities
Ábyrgð á hjúkrun, ráðgjöf og stuðningur til skjólstæðinga deildarinnar
Skráning hjúkrunar í samræmi við reglur spítalans
Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
Virkur þátttakandi í þróun og uppbyggingu verkefna á deild
Advertisement published25. September 2026
Application deadline19. October 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Advanced
Type of work
Professions
Job Tags
Other jobs (22)
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á göngudeild innkirtla og efnaskipta
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á innrennsliseiningu dagdeildar gigtarsjúkdóma
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á brotaendurhæfingardeild Landakoti
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunardeildarstjóri á geðgjörgæslu
Landspítali
Landspítali
Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á nýrri réttar- og öryggisgeðdeild
Landspítali
Landspítali
Íþróttafræðingur í Batasetri geðþjónustu
Landspítali
Landspítali
Íþróttafræðingur í sjúkraþjálfun á Hringbraut
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í myndgreiningu
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á göngudeild innkirtlasjúkdóma
Landspítali
Landspítali
Ljósmóðir á meðgöngu- og sængurlegudeild
Landspítali
Landspítali
Vöru- og verkefnastjóri heilbrigðistækni hjá stafrænni framþróun
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir á Sýkla- og veirufræðideild
Landspítali
Landspítali
Sérfræðingur á sviði storkurannsókna á rannsóknarkjarna
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á kvenlækningadeild
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur í krabbameinsþjónustu
Landspítali
Landspítali
Iðjuþjálfi - Vertu hluti af öflugu teymi iðjuþjálfa á Landakoti
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í lungnalækningum
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í fæðingarteymi
Landspítali
Landspítali
Iðjuþjálfi - Komdu að vinna með okkur í geðþjónustu
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunardeildarstjóri göngudeildar innkirtla- og gigtarsjúkdóma
Landspítali
Landspítali
Interested in Nursing Opportunities in Iceland? Register on our portal!
Landspítali
Landspítali
Interested in Medical Opportunities in Iceland? Register on our portal!
Landspítali